Nýr menntaskóli á Ásbrú Sæunn Gísladóttir skrifar 5. febrúar 2016 11:22 Á meðfylgjandi mynd má finna verkefnastjórana Þorstein Surmeli og Hjördísi Öldu Hreiðarsdóttur. Mynd/aðsend
Keilir á Ásbrú stefnir á að bjóða upp á þriggja ára stúdentsnám frá og með næsta hausti. Skólinn hefur fengið tilskilin leyfi frá menntamálaráðuneytinu og er nú vinna hafin við að koma skólanum á fót en hann mun bera nafnið Menntaskólinn á Ásbrú (MÁS). Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og Þorsteinn Surmeli, íslenskukennarar við Háskólabrú Keilis, munu hafa umsjón með námsbrautinni sem þau segja að muni leggja áherslu á nýjustu aðferðir í námi og kennslu og undirbúa nemendur fyrir störf framtíðarinnar.Óheðfbundinn skóliMÁS verður að mörgu leyti frábrugðinn öðrum framhaldsskólum. Skólinn mun leggja áherslu á vendinám (e. flipped classroom) sem hefur verið stór hluti af starfi Keilis á undanförnum árum. Í skólanum verða hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur munu nemendur stunda sína vinnu í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim. Skóladagurinn í MÁS mun ekki hefjast fyrr en klukkan 9 á morgnana enda eru áhrif myrkurs á sálarlíf Íslendinga vel þekkt. Dagleg hreyfing verður hluti af skólastarfinu enda mun MÁS leggja áherslu á bæði andlega og líkamlega vellíðan nemenda og starfsfólks. Með opnun Menntaskólans á Ásbrú bætist enn í þá fjölbreyttu menntaflóru sem fyrir er hjá Keili en þar er meðal annars hægt að læra einkaþjálfun, leiðsögunám í ævintýramennsku á háskólastigi, tæknifræði á háskólastigi, einka- og atvinnuflugmannsnám og flugvirkjun. Þá hafa um 1.400 manns lokið Háskólabrú sem er aðfaranám að háskólanámi.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Innlent Fleiri fréttir Þórólfur ætlar ekki fram Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ „Ég hef alltaf haft augun á þessu“ Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði Búin að biðja Jón afsökunar Stjórnlaus rasismi og spenna í Kraganum Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Sjá meira