Menning

Bók um líf Önnu Margrétar: „Ekki var ég þroska­heftur, spastískur eða haldinn ill­vígum sjúk­dómum“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega fróðleg saga.
Virkilega fróðleg saga. Vísir
Anna Margrét Grétarsdóttir og Bryndís Júlíusdóttir safna nú fyrir útgáfu bókarinnar Hún er pabbi minn – Saga transkonu á Karolina Fund. Bryndís skrifar bókina en hún fjallar um líf Önnu Margrétar.

Sagan er þroskasaga drengs og fjallar um Ágúst Má Grétarsson sem fæddist árið 1953. Ágúst er transkona og lýsir sagan ferðalagi hans og baráttu í gegnum hefðbundið hlutverk karlmanns í áratugi.

Bókin er saga af ferðalagi einstaklings í gegnum lífið. Einstaklingi sem fæðist sem drengur en snemma á lífsleiðinni áttar hann sig á því að ekki er allt sem skyldi. Bókin lýsir vonbrigðum, vonum og draumum þessa einstaklings sem seint og síðar meir sér drauma sína rætast. Sagan lýsir lífshlaupi fullu af hræðslu og fordómum og baráttu Önnu Margrétar fyrir sjálfri sér.

„Enginn gerir athugasemdir við heilbrigðan og hraustan strák. Ekki var ég þroskaheftur, spastískur eða haldinn illvígum sjúkdómum. Ég veit ekki heldur hvort hægt væri að kalla ástand mitt fötlun en það virkaði á mig sem mikil fötlun þegar á leið,“ segir Anna Margrét í bókinni.

„Ég fæddist fullkomlega heilbrigður lítill drengur, óx úr grasi og var með eindæmum skapgóð alltaf brosandi og hlæjandi. Þetta var samt bara yfirborðið. Að vera lítill strákur og átta sig á því að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Að vera kynþroska unglingur og átta sig smátt og smátt á því að maður er stelpa. Að fara í gegnum öll fullorðisárin og leika hlutverk karlmanns. Ekkert af þessu er auðvelt og þetta er ekki það sem neinn myndi óska sér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.