Innlent

100 ára sögu Vísis lokið

Ásgeir Erlendsson skrifar
Hundrað ára sögu einnar þekktustu verslunar landsins hér við Laugaveg eitt lauk um helgina þegar þegar skellt var í lás fyrir fullt og allt í versluninni Vísi.

Laugavegur 1 er eitt sögufrægasta hús borgarinnar. Húsið er eitt það elsta við götuna og þekkt fyrir verslunarrekstur Vísis sem staðið hefur yfir frá því í desember 1915.

Fjölmargir landsmenn eiga hlýjar minningar frá þessari litlu en heimilislegu verslun sem þjónað hefur höfuðborgarbúum í rúma öld. Síðustu mjólkurfernurnar og innréttingarnar voru bornar út um helgina.

Nágrannar Vísis, hjá Jóni Sigmundssyni Gullsmiði, koma til með að sakna búðarinnar enda báðar rótgrónar við götuna.Á næstu árum mun hluti Laugavegar eitt þar sem Vísir var til húsa vera rifinn og endurbyggður í samvinnu við Minjavernd. Það er liður í endurskipulagningu húsareitsins en fyrir aftan verslunina opnar hótel á næstu vikum.

Einungis tíminn mun svo leiða það í ljós hvort ný verslun nái að greypa sig í hug og hjörtu fólks líkt og verslunin Vísir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×