Landsbankinn hagnaðist um 36,5 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 25. febrúar 2016 16:24 Lagt verður til við aðalfund að greiddur verði 28,5 milljarða króna arður til hluthafa Landsbankans. Vísir/Vilhelm
Árið 2015 nam hagnaður Landsbankans 36,5 milljörðum króna, eftir skatta. Hagnaðurinn jókst um tæpa sjö milljarða milli ára. Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 14,8% á árinu 2015, samanborið við 12,5% árið 2014, segir í tilkynningu. Kostnaðarhlutfall Landsbankans lækkaði verulega á milli ára, tekjur jukust umtalsvert og kostnaður lækkaði. Tekjur vegna virðisbreytingar útlána nema 13,5 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 14,9 milljarða króna ári fyrr. Eigið fé Landsbankans nam 264,5 milljörðum króna í árslok 2015 og eiginfjárhlutfallið (CAR) var 30,4%. Lagt verður til við aðalfund að greiddur verði 28,5 milljarða króna arður til hluthafa. „Landsbankanum gekk vel á árinu 2015 og það var góður gangur á nánast öllum sviðum. Tekjur bankans jukust töluvert frá fyrra ári og um leið lækkuðu rekstrargjöld. Dregið hefur úr óvissu og áhættu hjá bankanum. Gæði eigna hafa aukist og fjármögnun bankans hefur styrkst með betra aðgengi að innlendum og erlendum lánamörkuðum. Lausafjárstaðan er sterk auk þess sem eiginfjárstaða bankans er hlutfallslega með því hæsta sem þekkist, þrátt fyrir háar arðgreiðslur. Samþætting Sparisjóðs Vestmannaeyja og Sparisjóðs Norðurlands við bankann gekk vel og styrkir Landsbankann enn frekar á landsbyggðinni,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans í tilkynningu. „Arðsemi eiginfjár bankans á undanförnum árum hefur verið góð og fór árið 2015 vel fram úr væntingum. Stórir og óvenjulegir liðir hafa þar haft töluverð áhrif. Þar er fyrst og fremst átt við tekjufærslur vegna virðisbreytingar útlána, en á árinu 2015 voru áhrif þeirra 13,5 milljarðar króna á hagnað eftir skatta og á árinu 2014 voru áhrifin um 14,9 milljarðar króna eftir skatta. Viðbúið er að hagnaður muni lækka töluvert á næstunni þar sem ekki er reiknað með áhrifum af þessum óvenjulegu liðum í rekstri bankans til framtíðar,“ segir Steinþór.
Tengdar fréttir Hagnaður Arion 49 milljarðar í fyrra Hagnaður Arion banka eftir skatta á árinu 2015 nam 49 milljörðum króna. Í tilkynningu frá bankanum segir að afkoma bankans beri þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangsmikil úrlausnarmál sem vörðuðu mikla hagsmuni fyrir bankann. 24. febrúar 2016 17:47 Hagnaður Íslandsbanka dregst saman um 2 milljarða Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 20,6 milljarðar á síðasta ári samanborið við 22,7 milljarða króna árið 2014. 23. febrúar 2016 09:32 Mest lesið Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira
Hagnaður Arion 49 milljarðar í fyrra Hagnaður Arion banka eftir skatta á árinu 2015 nam 49 milljörðum króna. Í tilkynningu frá bankanum segir að afkoma bankans beri þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangsmikil úrlausnarmál sem vörðuðu mikla hagsmuni fyrir bankann. 24. febrúar 2016 17:47
Hagnaður Íslandsbanka dregst saman um 2 milljarða Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 20,6 milljarðar á síðasta ári samanborið við 22,7 milljarða króna árið 2014. 23. febrúar 2016 09:32