Birgitta biðst afsökunar á sínum hlut í deilum innan Pírata Birgir Olgeirsson skrifar 24. febrúar 2016 09:58 Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata biður sérstaklega frjálshyggjumanninn Ólaf Evert afsökunar í opna bréfinu til Pírata. Vísir/Stefán „
Það er mér ljúft og skylt að biðja opinberlega afsökunar á því ef ég hef sært einhvern. Það var ekki ætlun mín en ég veit að ég get stundum verið hvatvís og þver,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, í opnu bréfi til Pírata og stuðningsmanna þeirra. Harðar deilur hafa verið innan Pírata undanfarið á Pírataspjallinu á Facebook þar sem Birgitta hefur verið sökuð um að hafa reynt að taka sér titil leiðtoga, formanns eða kapteins flokksins án umboðs frá Pírötum. Birgitta neitaði þessum ásökunum og sagði þetta oftast nær misskilning fjölmiðlamanna sem hún hefði gefist upp á að reyna að leiðrétta.Hægt að bregðast við ef Píratar eru rangtitlaðir í texta Helgi Hrafn tjáði sig um málið á Pírataspjallinu í gær þar sem hann sagði engan geta stjórnað því hvernig Píratar eru titlaðir í fjölmiðlum en hægt væri að bregðast við því eftir á ef það kom fram í texta.Sjá einnig: Helgi Hrafn segir að leysa þurfi samskiptavanda innan Pírata Sagði Helgi að sú tilraun Pírata að hafa flokkinn án formanns hafa mistekist og kominn væri tími á að íhuga kerfi þar sem einhver hafi skýrt umboð til að kalla sig formann flokksins.Bitur reiði kraumaði í Helga vegna ummæla Birgittu Þá sagði Helgi það skjóta skökku við að Birgitta, sem er í valdastöðu, setti sig í fórnarlambsstellingar eftir að hafa rægt aðra. Átti Helgi Hrafn þar við ummæli Birgittu um Ólaf Evert Úlfsson, sem fór úr Sjálfstæðisflokknum í Pírata. Sagðist Birgitta ætla að bjóða sig fram aftur á næsta kjörtímabili til að koma í veg fyrir að frjálshyggjumenn eins og Ólafur Evert tækju yfir Pírata. Helgi sagði bitra reiðið hafa kraumað í sér yfir því hvernig Birgitta talaði um Ólaf Evert opinberlega.Biður Ólaf Evert afsökunar Í opna bréfinu til Pírata biður Birgitta Ólaf Evert formlega afsökunar. „Ég vil biðja Ólaf Evert formlega og innilega afsökunar vegna ótta míns um að kosningakerfi okkar verði misnotað af þeim er aðhyllast frjálshyggju í anda frjálshyggjufélagsins eftir að hann skoraði á félaga á facebook síðu frjálshyggjufélagsins til að ganga í Pírata til að tryggja stefnu sem þeim hugnast í kosningakerfinu okkar. Það hefur komið fram að það hafi alls ekki verið ætlan hans heldur vildi hann bara að hvetja þá er aðhyllast frjálshyggju til að verða Píratar og auðvitað mega allir vera með í þessum flokki svo framarlega sem þeir aðhyllast grunnstefnu og þær stefnur sem Píratar hafa þegar lýst fyrir sem kosningabærum stefnumálum. Því vil ég segja við Ólaf, velkominn í Pírata.“Segist vera mannleg og gera mistök Birgitta segist vera mannleg og gera mistök en segist alltaf tilbúin að leiðrétta þau og mæta gagnrýni. „Ég er ekki endilega alltaf sammála öllum og finnst gott að við höfum ólíkar skoðanir um mikilvæg mál, það tryggir að við erum alltaf á jaðarbrúninni og erum alltaf vakandi,“ segir Birgitta. Hún biður Pírata um að bera klæði á vopnin og leita að því sem sameinar þá frekar en sundra. „Okkur hefur verið falið mikið traust og í slíku trausti felst mikil ábyrgð.“Bréf Birgittu til Pírata má lesa í heild hér fyrir neðan:Kæru PíratarVið erum nýtt pólitískt afl sem hefur laðað að sér fólk frá ólíkum pólítískum pólum og það í eðli sínu leiðir til togstreitu. Það sem gerist líka alltaf þegar um völd er að ræða að það upphefst valdabarátta um skoðanir og stefnur. Ég er mjög meðvituð um þetta og þess vegna þegar ég tók þátt í stofnun Pírata á Íslandi lagði ég til að við myndum hafa flatan strúktúr og dreifa ábyrgð og völdum. Það gekk ágætlega þangað til að við fórum að mælast með mikið fylgi og því hafa skapast umræður um það hvort við ættum ekki að hafa formleg völd þar sem valdastöður verða formfastar.Formlegar valdastöður hafa ávallt leitt til formfestu á völdum sem eru hluti af vanda fortíðar og nútíðar. Ég vona að valdefling og valddreifing verði hluti af langtíma stefnu hjá flokknum í stað þess að formfesta valdastöðurnar en fanga umræðum um lausnir ef fólk er ósátt.Nú erum við að takast á við eitt mikilvægasta mál kjörtímabilsins. Breytingar á stjórnarskrá. Það er mjög mikilvægt að við missum ekki sjónar á stóru myndinni.Sú misklíð sem hefur um langa hríð fengið að grassera innan flokksins er mein sem þarf að laga og fyrst aðrir félagar hafa ákveðið að opna á þá umræðu þá langar mig að koma eftirfarandi á framfæri.Þó að mér finnist mjög leiðinlegt að taka Ólaf Evert út fyrir sviga, þá vill halda því til haga að ég hef aldrei nafngreint hann opinberlega, en geri það nú því ég vil biðja Ólaf Evert formlega og innilega afsökunar vegna ótta míns um að kosningakerfi okkar verði misnotað af þeim er aðhyllast frjálshyggju í anda frjálshyggjufélagsins eftir að hann skoraði á félaga á facebook síðu frjáshyggjufélagsins til að ganga í Pírata til að tryggja stefnu sem þeim hugnast í kosningakerfinu okkar. Það hefur komið fram að það hafi alls ekki verið ætlan hans heldur vildi hann bara að hvetja þá er aðhyllast frjálshyggju til að verða Píratar og auðvitað mega allir vera með í þessum flokki svo framarlega sem þeir aðhyllast grunnstefnu og þær stefnur sem Píratar hafa þegar lýst fyrir sem kosningabærum stefnumálum. Því vil ég segja við Ólaf, velkominn í Pírata.Ég er mannleg og geri mörg mistök, en ég er alltaf tilbúin til að leiðrétta mistök mín og alltaf tilbúin að mæta gagnrýni. Ég er ekki endilega alltaf sammála öllum og finnst gott að við höfum ólíkar skoðanir um mikilvæg mál, það tryggir að við erum alltaf á jaðarbrúninni og erum alltaf vakandi.Það er mér ljúft og skilt að biðja opinberlega afsökunar á því ef ég hef sært einhvern. Það var ekki ætlun mín en ég veit að ég get stundum verið hvatvís og þver.Ég vil biðja ykkur um að bera klæði á vopnin ef einhver eru og leita að því sem sameinar okkar frekar en sundrar. Okkur hefur verið falið mikið traust og í slíku trausti felst mikil ábyrgð.Píratar í öðrum heimshornum hafa orðið fyrir sambærilegum áskorunum í meðbyr og þar mistókst að finna lausnir. Þar var ákveðið að takast á um allt á milli himins og jarðar fyrir opnum tjöldum og það endaði með algeru hruni á trausti. Það er eitt að tala efnislega um ólík pólitísk sjónarmið, annað er að takast á um persónuleg ágreiningsmál. Það vill enginn sem er að koma í partý lenda í rifrildi gestgjafana. Þá fer fólk eitthvað annað og það væri hörmulegt að þeir sem finna von í okkar málflutningi um pólitískar lausnir missi þá von.Það blasir við einstakt tækifæri til umbóta í samfélaginu okkar, látum það verða okkar leiðarljós.
Alþingi Tengdar fréttir Helgi Hrafn segir að leysa þurfi samskiptavanda innan Pírata „Hvernig við tölum um hvort annað er ekki í lagi,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson. 24. febrúar 2016 08:50 Hefur ekki áhyggjur af klofningi í röðum Pírata Mjög skiptar skoðanir eru meðal pírata um hvort samþykkja eigi tillögur að breytingar á stjórnarskrá, þrátt fyrir að þær gangi ekki nógu langt að þeirra mati. Þingmaður pírata hefur þó ekki áhyggjur af því að málið kljúfi stærsta flokk landsins. 21. febrúar 2016 20:00 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent Fleiri fréttir Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Skaut þremur skotum að dróna Fiskistofu Sauð upp úr í morgunumferðinni Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Jarðakaup fjárfesta ógn við matvælaöryggi og nýtt húsnæði Stuðla Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld „Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Bein útsending: Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Svarar Kára fullum hálsi Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Sjá meira
Helgi Hrafn segir að leysa þurfi samskiptavanda innan Pírata „Hvernig við tölum um hvort annað er ekki í lagi,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson. 24. febrúar 2016 08:50
Hefur ekki áhyggjur af klofningi í röðum Pírata Mjög skiptar skoðanir eru meðal pírata um hvort samþykkja eigi tillögur að breytingar á stjórnarskrá, þrátt fyrir að þær gangi ekki nógu langt að þeirra mati. Þingmaður pírata hefur þó ekki áhyggjur af því að málið kljúfi stærsta flokk landsins. 21. febrúar 2016 20:00