Erlent

Leita leiða til að losna við Trump

Birta Björnsdóttir skrifar
Vísir/EPA
Ummæli í kappræðum repúblikanaflokksins í gær fóru fyrir neðan beltisstað. Ólga er meðal hluta flokksmanna með gott gengi Donalds Trump og leita þeir allra leiða til að hann hljóti ekki útnefningu flokksins.

Þeir sem halda því fram að kappræður frambjóðenda Repúblikanaflokksins einkennist öðru fremur af persónulegum árásum og ómálefnalegum umræðum gætu haft nokkuð til síns máls, miðað við nokkur þau ummæli sem féllu í kappræðunum í Detroit í gær.

„Og hann sagði að fyrst hendurnar á mér væru litlar hlyti eitthvað annað að vera lítið. Ég get fullvissað ykkur um að það er ekkert vandamál. Ég ábyrgist það,“ sagði Donald Trump.

Þeir þrír sem eftir standa í baráttunni við Donald Trump þreytast ekki á að tíunda ókosti hans og fleiri flokksmenn hafa lagst á árar með þeim.

„Hugsið um persónueiginleika Donalds Trump, yfirganginn, græðgina, sýndarmennskuna, kvenhatrið, þessa fáránlegu þriðjabekkjarstæla,“ sagði Mitt Romney á dögunum, en hann var forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum árið 2012.

Nær ómögulegt þykir fyrir mótframbjóðendur Trumps að ná forskoti hans í forvalinu. Saman gætu þeir þó komið í veg fyrir að Trump nái þeim 1237 kjörmönnum sem mundu tryggja honum útnefningu flokksins.

Nái Trump ekki þessum fjölda kjörmanna geta kjörmenn hinna frambjóðendanna sameinast um annan frambjóðanda.

Verði þetta raunin er spurning hvort þeir Cruz, Rubio eða Kasich séu tilbúnir að fylkja sér á bakvið hvorn annan. Hinn möguleikinn er að kjörmennirnir lýsi yfir stuðningi við enn annan frambjóðanda, en heimildir CNN fréttstofunnar herma að fyrrnefndur Mitt Romney eygi þarna von til að verða í annað sinn fulltrúi Repúblikana í baráttunni um Hvíta húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×