Erlent

Svíaprinsessa búin að eiga

Birgir Olgeirsson skrifar
Viktoría ásamt eiginmanni sínum Daníel.
Viktoría ásamt eiginmanni sínum Daníel. Vísir/Getty
Viktoría krónprinsessa Svía var rétt að eignast barn. Frá þessu er greint á vef sænska ríkisútvarpsins SVT en þar segir að Daníel eiginmaður hennar muni halda blaðamannafund við Karólínska-sjúkrahúsið í Solna í kvöld, þar sem hann mun meðal annars greina frá kyni barns og líðan móður.

Fyrir eiga Viktoría og Daníel prinsessuna Estelle sem fæddist 23. febrúar árið 2012.

Uppfært 21.40: Daníel greindi frá því á blaðamannafundi rétt í þessu að móður og barni heilsast vel. Barnið reyndist drengur en Daníel sjálfur klippti á naflastrenginn. Drengurinn kom í heiminn kl. 20.28 að staðartíma en hjónin vissu kyn þess ekki fyrir fæðinguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×