Menning

Litagleðin ræður ríkjum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Finnbogi segir atburði samtímans hverju sinni einatt hafa áhrif á verk hans. Fréttablaðið/Ernir
Finnbogi segir atburði samtímans hverju sinni einatt hafa áhrif á verk hans. Fréttablaðið/Ernir Vísir/Ernir
„Ég fullyrði að ég fæddist með myndlistina sem aðalatriði í lífinu. Var flinkur að teikna sem barn og skildi liti og form betur en texta,“ segir Ingibergur Finnbogi, kallaður Bogi, sem starfar hjá Samskipum og hefur gert í áratugi. Hann er 62 ára og er að sýna eigin sköpunarverk í myndlist í fyrsta skipti í Gallerý O hjá Orange project í Ármúla 4-6, þar deilir hann sal með Gunnari Gunnarssyni myndlistarmanni.

Tréskúlptúrarnir hans Boga birta hinar litskrúðugustu myndir sem hann marglakkar yfir með glæru lakki svo þeir líta út eins og glerlistaverk. Fyrst kveðst hann móta mynstrin í viðarplankana, bæði með sporjárni og slípirokki, og nota margs konar liti en þó einkum tréliti af bestu gerð.

„Þannig næ ég fram smáatriðunum,“ segir hann og bætir við: „Það er erfitt að búa til eitthvað nýtt, bæði í myndlist og tónlist, en ég veit ekki um neinn sem hefur notað þessa aðferð. Það er gaman að fylgjast með gestum sem koma á sýninguna því hinir sterku litir fanga strax augu þeirra.“

Bogi málar öll sín myndverk á tré. Mynd úr einkasafni
Í verkum sínum túlkar hann það sem er að gerast í samtímanum hverju sinni og er honum hugleikið þá stundina.

Hann kveðst hafa byrjað í Myndlista-og handíðaskólanum í kringum 1970 eins og margir aðrir en lífsbaráttan hafi tekið völdin, líka tónlist og spilerí með ballhljómsveitum á borð við Ópus. En hann lítur björtum augum til eftirlaunaáranna þegar hann getur helgað sig listinni meira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×