Innlent

Segir ráðningu bæjarstjóra í forstjórastól Orkubúsins lykta illa

Heimir Már Pétursson skrifar
Árni Brynjólfsson bóndi og stjórnarmaður í Orkubúi Vestfjarða segir sig úr stjórn Orkubúsins þótt hann segist vanur fjósalykt. Aðrir stjórnarmenn tengjast allir Sjálfstæðisflokknum.
Árni Brynjólfsson bóndi og stjórnarmaður í Orkubúi Vestfjarða segir sig úr stjórn Orkubúsins þótt hann segist vanur fjósalykt. Aðrir stjórnarmenn tengjast allir Sjálfstæðisflokknum. vísir/pjetur
Stjórnarmaður í Orkubúi Vestfjarða hefur sagt sig úr stjórn fyrirtækisins vegna ráðningar bæjarstjórans í Bolungarvík í starf forstjóra Orkubúsins. Hann segir að fyrirframákveðið ráðningarferli hafi verið sniðgengið og hæfasti maðurinn ekki ráðinn í starfið.

Bæjarins besta á Ísafirði greinir frá því í morgun að Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum í Önundarfirði hafi sagt af sér stjórnarmennsku í Orkubúi Vestfjarða vegna ráðningar Elíasar Jónatanssonar bæjarstjóra í Bolungarvík í starf forstjóra Orkubúsins. Árni greiddi einn stjórnarmanna atkvæði gegn ráðningunni en allir hinir stjórnarmennirnir tengjast eins og Elías Sjálfstæðisflokknum.

Árni segir að eftir ráðningu Elíasar geti hann ekki unnið að heilindum í stjórn Orkubúsins.

„Í fyrsta lagi finnst mér ekki ráðningarferlið sem ég taldi mig vera þátttakenda í ekki hafa verið klárað. Við vorum stödd í ferli sem átti að enda með því að stjórnin fengi umsækjendur í viðtal,“ segir Árni.

Til hafi staðið að eftir að ráðningafyrirtæki hefði flokkað tvo til fjóra hæfustu umsækjendurna úr stórum hópi umsækjenda, myndi stjórnin ræða við þá. Ekki hafi verið staðið við það heldur boðað til símafundar þar sem atkvæðagreiðsla fór fram um ráðningu Elíasar bæjarstjóra án þess að stjórnarmenn hefðu nokkru sinni rætt við hann eða aðra umsækjendur.

Finnst þér þetta lykta af því að það hafi verið fyrir fram ákveðið að Elías ætti að fá starfið?

„Ég get svo sem ekkert fullyrt um það. En ég neita því ekki að mér finnst ég finna vonda lykt.“

Og þá pólitíska?

„Eða einhver önnur lykt sem við getum talað um. Ég er reyndar vanur fjósalykt.“

Þannig að þér finnst vera skítalykt af málinu?

„Ég ætla ekkert að tjá mig frekar um það,“ segir Árni og hlær.

Það hefði verið eðlilegt að stjórnarmenn fengju að hitta tvo til fjóra umsækjendur í viðtal. Niðurstaðan hafi orðið sú að hæfasti einstaklingurinn hafi ekki verið ráðinn í starfið.

„En í mínum huga er það ekki hæfasti einstaklingurinn. Ég held að það hafi komið fram einhvers staðar eftir mér að ég gat kannski sett hann í fjórða sæti. En mig vantaði náttúrlega að klára ferlið. Hugsanlega hefði ég fengið einhver rök í viðtali við aðila sem hefði breytt því,“ segir  Árni Brynjólfsson.


Tengdar fréttir

Leyndardómsfullt háskólanám orkubússtjóra

"Mér finnst þetta bara vera mitt prívatmál,“ segir Kristján Haraldsson sem lýkur störfum hjá Orkubúi Vestfjarða í tólf mánaða námsleyfi með yfir milljón krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×