Erlent

Nýr forseti Myanmar

Htin Kyaw ásamt leiðtoganum Aung San Suu Kyi.
Htin Kyaw ásamt leiðtoganum Aung San Suu Kyi. Vísir/AP
Þingið í Myanmar hefur kosið Htin Kyaw sem næsta forseta landsins. Hann er fyrsti almenni borgarinn sem stjórnar landinu eftir rúmlega hálfrar aldar herforingjastjórn. Kyaw er náinn samstarfsmaður Aung San Suu Kyi, en flokkur hennar var stórsigur í sögulegum kosningum í nóvember síðastliðnum.

Herforingjastjórnin hafði áður komið í veg fyrir að Aung San Suu Kyi gæti sjálf tekið við embættinu en hún hefur sjálf sagt að hún verði í raun yfir það hafið, en hún stjórnar NLD flokknum sem Kyaw er meðlimur í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×