Manchester United sleppur | Ekki refsað af UEFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2016 11:21 Hillsborough harmleikurinn. Vísir/Getty
Manchester United verður ekki refsað af Knattspyrnusambandi Evrópu vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í fyrri leiknum á móti Liverpool í sextán liða úrslitum Evrópudeildar UEFA. Stuðningsmenn Manchester United sungu þá söngva um Hillsborough-harmleikinn sem kostaði 96 stuðningsmenn Liverpool lífið. Liverpool vann leikinn 2-0 á Anfield og er í góðri stöðu fyrir síðari leikinn sem fer fram á Old Trafford á fimmtudagskvöldið kemur. Hegðun stuðningsmanna Manchester United þótti sorgleg og settu söngvarnir ljótan svip á leikinn. Ekkert verður þó gert meira í málinu að hálfu Knattspyrnusambands Evrópu. Ástæðan fyrir því að Manchester United sleppur með skrekkinn er að dómari leiksins minntist ekki á þetta í umsögn sinni um leikinn. UEFA tekur því enga ástæðu til að taka málið fyrir. 96 stuðningsmenn Liverpool krömdust til bana á Hillsborough-leikvanginum á undanúrslitaleik Liverpool og Nottingham Forrest í apríl 1989. Umræddir stuðningsmenn Liverpool fengu mjög einlita og ósanngjarna umfjöllun í enskum fjölmiðlum eftir slysið þar sem þeim var kennt um hvernig fór. Annað hefur komið á daginn enda voru það mistök lögreglu sem orsökuðu troðninginn.Hillsborough, 15, apríl 1989.Vísir/Getty
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira