Menning

Keli sýnir verkin sín í Neskirkju

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Sr. Skúli S. Ólafsson og Hrafnkell Sigurðsson
Sr. Skúli S. Ólafsson og Hrafnkell Sigurðsson Vísir/Stefán Karlsson
„Það sem er svo skemmtilegt við að sýna í þessari byggingu er að fá nýja sýn á eigin verk,“ segir myndlistarmaðurinn Hrafnkell Sigurðsson, sem opnar sýningu á Kirkjutorgi, safnaðarheimilinu í Neskirkju, á sunnudag. Hrafnkell hefur átt mikilli velgengni að fagna. Verk hans eru til sýnis á söfnum á meginlandi Evrópu, í Bandaríkjunum og á Íslandi, svo eitthvað sé nefnt.

Messað verður kl. 11.00, samkvæmt hefðinni, en sr. Skúli S. Ólafsson sóknarprestur ræðir um verk Hrafnkels í predikun sinni.

Skúli og Hrafnkell eru sammála um að uppsetning verkanna í kirkju dragi fram aðra hlið á þeim en væru þau sýnd í hefðbundnara sýningarrými.

„Verkin eru líkamleg, en líka andleg. Eins og mannfólkið – við erum þetta tvennt, líkaminn og andinn. Inni í kirkju setur maður þetta meira í svona andlegt samhengi,“ útskýrir Hrafnkell.

Að messu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar á Kirkjutorgi og Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og nefndarmaður í Sjónlistaráði Neskirkju, ávarpar gesti og fjallar um sýninguna.

Ýmsar sýningar hafa verið haldnar á Kirkjutorgi, en nýtt Sjónlistaráð Neskirkju var skipað á dögunum. Fyrsta val ráðsins á listamanni var Hrafnkell. Áður hafa m.a. Húbert Nói og Einar Garibaldi sýnt verk sín á Kirkjutorgi.

„Hrafnkell er frábær myndlistarmaður. Það er mikill heiður að fá að sýna verk eftir hann,“ segir sr. Skúli.

Verkin á sýningunni spanna tíu ára tímabil. „Þannig að það má segja að þetta sé lítil yfirlitssýning á verkum Hrafnkels.“

Skúli S Ólafsson og Hrafnkell SigurðssonVísir/Stefán Karlsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×