Chris Paul verður ekki með í Ríó Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2016 17:23 Chris Paul. Vísir/Getty
Chris Paul ætlar ekki að gefa kost á sér í bandaríska körfuboltalandsliðið á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst en hann gaf þetta út í viðtali við Sports Illustrated. Chris Paul er þegar búinn að vinna tvö Ólympíugull á ferlinum en hann var með bandaríska sigurliðinu á ÓL í Peking 2008 og ÓL í London 2012. „Ég finn að skrokkurinn minn er að segja mér að ég þurfi á þessum frítíma að halda," sagði Chris Paul í viðtalinu við Sports Illustrated. Hann verður 31 árs í maí og er á sínu ellefta tímabili í NBA-deildinni. Þetta er það eina sem Chris Paul hefur unnið á ferlinum því ekki hefur hann verið nálægt að spila um NBA-meistaratitilinn og bandaríska landsliðið varð í þriðja sæti með hann innanborðs á HM 2006. Chris Paul er að spila vel með Los Angeles Clippers á þessu tímabili en hann er með 19,8 stig og 9.9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann hefur ekki áhyggjur af því að fjarvera sín hafi slæm áhrif á bandaríska landsliðið. „Liðið er með Steph (Curry) og alla þessa stráka. Ég held að Kyle Lowry yrði frábær fyrir liðið," sagði Chris Paul en Kyle Lowry er þó ekki í stóra hópnum. Þar eru aftur á móti bakverðirnir Steph Curry, Russell Westbrook, Mike Conley, John Wall, Kyrie Irving og Damian Lillard. Paul hefur fjórum sinnum verið með flestar stoðsendingar í leik á tímabili og hefur fjórum sinnum verið valinn í úrvalslið tímabilsins.
Körfubolti NBA Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Fótbolti Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti „Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“ Sport Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Íslenski boltinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Handbolti Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira