Erlent

Hommahatari hellti sjóðandi vatni á sofandi par

Samúel Karl Ólason skrifar
Marquez Tolbert og kærasti hans Anthony Gooden eru alvarlega brenndir eftir árás hommahatara í síðasta mánuði. Þeir Tolbert og Gooden voru sofandi á heimili fjölskyldu Tolbert þegar kærasti móður hans hellti sjóðandi vatni yfir þá. Mennirnir fengu annars og þriðja stigs bruna vegna árásarinnar.

Tolbert var á sjúkrahúsi í tíu daga þar sem hann gekkst undir fjölda aðgerða en Gooden var útskrifaður á föstudaginn.

Áverkar Tolbert.Mynd/Gofundme
Martin Blackwell, kærasti móðurinnar, hefur verið ákærður fyrir tvær alvarlega líkamsárásir.

WSBTV í Atlanta í Bandaríkjunum ræddi nýverið við Marquez Tolbert. Hann sagði að Blackwell hefði hellt yfir þá vatninu og sagt þeim að „koma sér út úr húsinu sínu með alla þessa samkynhneigð“. Blackwell bjó þó ekki í húsinu.

Hann sagði lögreglunni að það yrði allt í lagi með parið. „Þetta var bara smá heitt vatn sem ég hellti á þá.“

„Ég get ekki sofið vegna sársauka. Þetta er svo sárt, 24 klukkustundir á dag, og hann fer hvergi. Hann minnkar ekki. Hann er bara þarna,“ sagði Tolbert í viðtalinu sem sjá má hér að neðan.

Vinur fjölskyldu Tolbert hefur sett af stað hópfjáröflun. Þau þurfi hjálp við sjúkrakostnað og fleira. Þegar þetta er skrifað hafa safnast rúmlega 62 þúsund dali, en markmið söfnunarinnar var 40 þúsund dalir. Sömuleiðis hefur verið setta af stað fjáröflun fyrir Antony Gooden, þar sem þegar hafa safnast tæpir 66 þúsund dalir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×