Erlent

Lögreglumaður fórst í sprengjuárás í Rússlandi

Atli Ísleifsson skrifar
ISIS hefur áður gert árásir í Dagestan-héraði. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
ISIS hefur áður gert árásir í Dagestan-héraði. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Lögreglumaður fórst og tveir særðust þegar tveir bílar voru sprengdir í loft upp í Dagestan í suðurhluta Rússlands. Talsmaður lögreglunnar í héraðinu greinir frá þessu.

Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni og fullyrðir í yfirlýsingu að tíu manns hafi látið lífið. Þetta hefur þó ekki fengist staðfest.

ISIS hefur áður gert árásir í héraðinu, en margir uppreisnarmenn sem börðust gegn rússneska hernum í stríðinu í Téténíu á tíunda áratugnum hafa gengið til liðs við ISIS að því er segir í frétt SVT.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×