Erlent

Síðasti læknir bæjarins skotinn af leyniskyttu

Samúel Karl Ólason skrifar
Hjálparsamtökum tókst að koma birgðum til Zabadani í febrúar.
Hjálparsamtökum tókst að koma birgðum til Zabadani í febrúar. Vísir/AFP
Síðasti læknirinn í bænum Zabadani í Sýrlandi var skotinn til bana af leyniskyttu í síðasta mánuði. Bærinn hefur verið umkringdur af stjórnarher Bashar al-Assad og bandamanna þeirra í Hezbollah um langt skeið og eru aðstæður þar mjög slæmar fyrir þá 500 sem enn halda þar til.

Síðasta árið hafa tugir látið lífið úr hungri og vannæringu vegna umsátra í Sýrlandi. Nærri því hálf milljón manna situr föst vegna umsátra stjórnarhersins og Íslamska ríkisins. Sameinuðu þjóðirnar segja þar að auki að hjálparstarfsmenn hafi einungis komið birgðum og nauðsynjum til tæps þriðjungs þeirra.

Samhliða friðarviðræðum í Genf hefur verið reynt að draga úr umfangi umsátra í Sýrlandi og hafa hjálparsamtök fengið leyfi til að koma birgðum til fólks en það hefur gengið hægt.

Neyddur til starfa og sat fastur

Árið 2011 börðust hermenn af mikilli hörku gegn mótmælendum í Sýrlandi. Í bænum Baqin hlúði skurðlæknirinn Mohammed Khous að mörgum mótmælendum og þurfti hann að flýja þegar öryggissveitir hófu að leita hans og annarra heilbrigðisstarfsmanna.

Þá kom að því að uppreisnarmenn ráku herinn frá nærliggjandi bæ. Free Syrian Army tók yfir Zabadani. Svo flúði síðasti skurðlæknir bæjarins þaðan í fyrra og Khous fluttist þangað. Heimildarmaður AP fréttaveitunnar segir að Khous hafi verið neyddur af uppreisnarmönnum til að starfa á sjúkrahúsinu. 

Þar festist hann í einu af verri umsátrum borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi. Herinn og Hezbollah komu fjölda jarðsprengja fyrir í kringum Zabadani og leyniskyttur umkringja bæinn og skjóta á alla sem reyna að fara eða koma.

Í hvíld milli skurðaðgerða

Hinn sjötíu ára gamli Mohammed Khous var á leið til sonar síns til að hvíla sig á milli skurðaðgerða þegar hann var skotinn í höfuðið af leyniskyttu.

Það tók björgunaraðila þrjá tíma að ná líki Khous af götunni þar sem leyniskyttur skutu á þá á meðan. Yfirmaður sjúkrahússins sem Khous vann á, Burhan, segist 95 prósent viss um að skotið hafi komið úr herbúðum stjórnarhersins og Hezbollah. Tveir aðrir féllu fyrir leyniskyttum þann dag.

Nokkrum dögum seinna varð góður vinur Burhan fyrir skoti leyniskyttu. Hann segir AP að sár hans hafi verið alvarlegt og þar sem þeir hafi ekki haft lækni til að koma honum til bjargar hafi þeir neyðst til að horfa á hann deyja vegna sára sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×