Cruz og Sanders voru sigurvegararnir í Wisconsin 6. apríl 2016 07:04 Bernie Sanders er á skriði þessa dagana.
Repúblikaninn Ted Cruz fór með sigur af hólmi í forkosningum sem fram fóru í Wisconsin í nótt. Sigur Cruz er áfall fyrir Donald Trump sem hingað til hefur verið á sigurbraut. Trump er enn fremstur meðal þeirra þriggja sem reyna að hreppa útnefningu flokksins fyrir komandi forsetakosningar en sérfræðingar segja nú margir að hann muni eiga í erfiðleikum með að tryggja sér nægilegan fjölda kjörmanna sem til þarf. Hinir tveir, þeir Cruz og John Kasich, binda nú vonir við að enginn þeirra nái tilætluðum fjölda. Gerist það, verður útnefningin á komandi landsþingi í höndum leiðtoga flokksins en ekki kjósenda. Demókratar í Wisconsin gengu einnig að kjörborðinu í gær til að velja sinn mann fyrir komandi forsetakosningar. Þar fór Bernie Sanders með góðan sigur af hólmi gegn Hillary Clinton. Sanders hafði betur í öllum sýslum ríkisins nema í einni, Milwaukiee. Þrátt fyrir það nær hann lítið að saxa á forskotið sem Hillary hefur náð á hann, því í Wisconsin er kjörmönnum útlhlutað hlutfallslega. Áttatíu og sex kjörmenn eru í boði og svo virðist sem Sanders tryggi sér 44 en Clinton 28. Sanders hefur þó átt góðu gengi að fagna undanfarið, hann hefur sigrað í sex af síðustu sjö ríkjum.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Sigurjón lenti fyrir bíl: „Þetta er alveg lygilegt“ Innlent Biden segir vopnahlésviðræður á lokametrunum Erlent Fjölgun ferðamanna hefur áhrif á útköll Landhelgisgæslunnar Innlent Viðvarandi verkefni að finna jafnvægi milli íhalds og frjálslyndis Innlent Sakborningur í Sólheimajökulsmáli ákærður fyrir tilraun til manndráps Innlent Grét og sagði líf sitt búið eftir að hafa stungið þrjá Innlent Að minnsta kosti 24 látnir Erlent Hafa hirt tugi hræja í höfuðborginni og fleiri kettir sendir í sýnatöku Innlent Týnd atkvæði séu ekki einsdæmi Innlent Þáttur hinna mannanna rannsakaður í þaula Innlent Fleiri fréttir Biden segir vopnahlésviðræður á lokametrunum Að minnsta kosti 24 látnir Máluðu gröf Charles Darwin í mótmælaskyni Fundu leifar af fíkniefnum í þinghúsinu eftir jólagleði þingflokka Hnjúkaþeyrinn sem knýr áfram eldana mannskæðu í Los Angeles Stjórnmálamenn fá ekki að tjá sig á 80 ára afmæli frelsunar Auschwitz Svíar séu hvorki í stríði né búi þeir við frið Tala látinna hækkar í LA og veðurspáin er óhagstæð Tugir slasaðir eftir árekstur tveggja sporvagna Alls sextán látin í eldunum Heilbrigðisyfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi Tveir látnir eftir að rúta hafnaði á hliðinni Weidel og Scholz kanslaraefni Fyrrverandi barnastjarna og feðgar meðal látinna Tveir norður-kóreskir hermenn sagðir í haldi Úkraínuhers Anita Bryant er látin Byssumaður í Pizzagate-málinu skotinn til bana Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Heimurinn er að breytast, hvað sem er getur gerst“ „Faðir minn ætti að deyja í fangelsi“ „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Útgöngubann í borginni í nótt Vörpuðu fimmtíu sprengjum á þrjú skotmörk í Jemen Trump ekki dæmdur í fangelsi Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Staðfesta að 2024 var heitasta árið í mælingasögunni Sóttu sér meira en milljón ára gamlan ís á Suðurskautslandinu Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Stóru eldarnir enn hömlulausir Sjá meira