Golden State getur enn bætt metið | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2016 11:04 Green átti mjög góðan leik í nótt. vísir/getty
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Golden State Warriors á enn möguleika á að bæta met Chicago Bulls frá tímabilinu 1995-96 eftir nauman sigur, 99-100, á Memphis Grizzlies. Þetta var 71. sigur Golden State á tímabilinu en liðið vantar aðeins einn sigur til að jafna met Chicago frá því fyrir 20 árum. Golden State á tvo leiki eftir og með sigri í þeim báðum bætir liðið met Michaels Jordan og félaga. Draymond Green var atkvæðamestur í liði Golden State með 23 stig og 11 fráköst. Klay Thompson skoraði 20 stig og Stephen Curry skilaði 17 stigum, níu fráköstum og átta stoðsendingum. Chicago á enn von um að komast í úrslitakeppnina eftir þriggja stiga sigur, 105-102, á Cleveland Cavaliers á heimavelli. Jimmy Butler var stigahæstur í liði Chicago með 21 stig en LeBron James gerði 33 stig fyrir Cleveland sem mistókst að gulltryggja sér efsta sætið í Austurdeildinni. Þá vann Sacramento Kings Oklahoma City Thunder, 114-112, í síðasta leiknum í Sleep Train Arena, þar sem Sacramento hefur spilað í tæpa þrjá áratugi. Á næsta tímabili færir liðið sig yfir í Golden 1 Center í miðborg Sacramento. Darren Collison skoraði 27 stig fyrir Sacramento en hjá Oklahoma bar mest á Kevin Durant sem gerði 31 stig og gaf átta stoðsendingar.Úrslitin í nótt: Memphis 99-100 Golden State Chicago 105-102 Cleveland Sacramento 114-112 Oklahoma New Orleans 100-121 Phoenix Atlanta 118-107 Boston Portland 105-106 MinnesotaDraymond Green var öflugur LeBron James með kraftmikla troðslu Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Í beinni þegar tilkynnt var að hann væri rekinn Fótbolti Gáfu skít í yfirmann sem hreykti sér af þeirra afrekum Fótbolti Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Versta byrjun í sögu efstu deildar Fótbolti Hélt hann væri laus við þessi mál Fótbolti „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Sonur Zlatans í fyrsta sinn í landslið Fótbolti Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Enski boltinn Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Enski boltinn Fleiri fréttir GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig,“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum „Okkur fannst það skylda að klára með sigri“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 60-54 | Kvöddu Ljónagryfjuna með sigri Ljónagryfjan kvödd í kvöld Sævar og Stefán misstu andlitið í beinni: „Það leið næstum yfir mig“ Dikembe Mutombo látinn Enginn „heimsendir“ verði Keflavík ekki Íslandsmeistari Teitur valdi besta Íslendinginn í Bónus deildinni Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Sjá meira