Mourinho stýrir enska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2016 13:00 Jose Mourinho.
Jose Mourinho, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og Real Madrid, mun stýra enska landsliðinu í góðgerðaleik á móti liði Claudio Ranieri á Old Trafford í sumar. Liðin munu mætast í árlegum Soccer Aid leik þar sem er safnað fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, Unicef. Í ár mun verkefnið fagna tíu ára afmæli sínu. Sky segir frá. Aðstoðarmaður Jose Mourinho í leiknum verður Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Sunderland, en Robbie Williams, annar af stofnendum Soccer Aid verkefnisins verður einnig í þjálfarateyminu. „Ég vil vera sá fyrsti til að vinna Soccer Aid með bæði enska liðinu og heimsliðinu," sagði Jose Mourinho en hann stýrði heimsliðinu til 4-2 sigurs í leiknum sumarið 2014. „Ég og Sam munum vinna vel saman og það verður gott fyrir Claudio að fá loksins að kynnast því að tapa leik. Ég vona að umsjónarmenn leiksins geti líka hjálpað mér að fá enskt vegabréf," sagði Mourinho. Claudio Ranieri er langt kominn með að gera Leicester City að enskum meisturum en liðið var í harðri fallbaráttu fyrir ári síðan. „Það var mikill heiður fyrir mig að Robbie Williams bað mig um að stýra heimsliðinu í þessum tíu ára afmælisleik. Ég hlakka til að hjálpa þeim að verja titilinn,“ sagði Claudio Ranieri. Soccer Aid leikurinn fór fram á Wembley 2008 en hefur farið fram á Old Trafford 2006, 2010, 2012 og 2014. Verkefnið hefur safnað samtals 17 milljónum punda fyrir Unicef sem gera rúmlega þrjá milljarða íslenskra króna.
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Uppgjör og viðtöl: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira