Erlent

Aðgerðir ESB eru sagðar misheppnaðar

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Þýskir hermenn bjarga flóttafólki úr sjávarháska á Miðjarðarhafinu.
Þýskir hermenn bjarga flóttafólki úr sjávarháska á Miðjarðarhafinu. vísir/epa
Bresk þingnefnd segir hernaðaraðgerðir Evrópusambandsins gegn smygli með flóttafólk yfir Miðjarðarhafið ekki virka sem skyldi.

Að vísu hafi tekist að bjarga lífi fjölda fólks, en ekki sé ráðist að orsökum vandans heldur aðeins reynt að bregðast við afleiðingunum.

Ekki hafi tekist að hafa hendur í hári þeirra, sem standa að baki smyglinu. Þeir sem hafa verið handteknir hafi ekki gegnt stóru hlutverki.

Þá hafi flóttafólki verið stefnt í enn meiri hættu með því að eyðileggja trébáta, sem notaðir hafa verið til að flytja fólk yfir hafið. Þetta hafi einfaldlega orðið til þess að fólkið hefur verið sent út á haf á gúmmíbátum, sem eru enn ótryggari fleytur.

Evrópusambandið kallar þessar hernaðaraðgerðir á Miðjarðarhafinu Operation Sophia. Þær voru samþykktar í maí á síðasta ári, nokkrum vikum eftir að 800 flóttamenn fórust þegar yfirfullum bát hvolfdi út af strönd Líbíu.

Herskip frá Evrópuríkjum fylgjast nú með stóru svæði fyrir miðju Miðjarðarhafsins, einkum út af ströndum Líbíu og þaðan til Ítalíu. Upplýsingum er safnað, fólki er bjargað og smyglbátar eru teknir til eyðileggingar.

Niðurstaða nefndarinnar er samt sú, að hernaðaraðgerðir einar geti aldrei leyst þann vanda sem við er að etja.

Til skamms tíma eigi Evrópusambandið að leggja mesta áherslu á að leita uppi og bregðast við ólöglegu peningaflæði sem tengist smygli á fólki: Smyglferðir með fólk yfir Miðjarðarhafið séu hins vegar fjármagnaðar með óformlegum hætti, oft án þess að flóttafólkið sjálft komi þar nærri. 

Til lengri tíma litið þurfi svo að hafa í huga að flóttamannastraumurinn til Evrópu sé aðeins partur af fólksflutningum á heimsvísu.

Þessar hernaðaraðgerðir gegn smyglurum eru einn af nokkrum meginþáttum í þeirri stefnu Evrópusambandsins í að hindra að flóttafólk komist til aðildarríkjanna í stórum stíl. Annar liður í þessari viðleitni er samningurinn við Tyrkland um að taka aftur við flóttafólki, sem fer yfir hafið frá Tyrklandi til Grikklands.

Flóttafólkinu er nú safnað saman á grísku eyjunni Lesbos, þar sem það bíður eftir því að verða sent aftur yfir til Tyrklands.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×