Lífið

Kim Kardashian snappar Blue Lagoon vöru

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Þá vitum við hvernig Kim Kardashian heldur frísklegu útliti sínu.
Þá vitum við hvernig Kim Kardashian heldur frísklegu útliti sínu. Vísir
Það lítur út fyrir að Kim Kardashian hafi nú keypt sér eitthvað annað en bara Bæjarins Bestu pylsur eða franskar kartöflur á meðan hún var hér á Íslandi ásamt eiginmanni sínum Kanye West í apríl.

Í dag deildi hún Snapchatti þar sem hún sýndi nokkrar af þeim vörum sem hún notar til þess að fríska upp á útlit sitt. Þar á meðal var húðkrem sem hún hefur verslað í heimsókn sinni í Bláa Lónið.

Þar sem hún virðist vera svona hrifin af íslensku vörunni, þá velta menn vöngum yfir því hvort líkur séu á því að hún komi bráðlega hingað aftur til þess að næla sér í auka skammt?

Þetta er varan úr Bláa lóninu sem Kim virðist vera svo hrifin af.Vísir

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.