Skoðun

Það vantar lyfjatækna á Landspítala

Inga J. Arnardóttir skrifar
Á ársfundi Landspítala eru árlega heiðraðir starfsmenn sem hafa sýnt framúrskarandi árangur í starfi og þeir sem hafa sýnt sérstaklega lofsvert framtak til starfseminnar. Í flestum tilfellum eru það einstaklingar sem fá slíka viðurkenningu en hópar eru líka heiðraðir. Þessar heiðranir byggja á tilnefningum frá samstarfsfólki og stjórnendum. Í ár bárust yfir 300 tilnefningar og hafa þær aldrei verið fleiri. Í ár voru lyfjatæknar sem starfa í sjúkrahúsapóteki Landspítalans heiðraðir. Í tilnefningunum kom fram að lyfjatæknum í apótekinu hafi tekist einstaklega vel upp að þjónusta spítalann. Þá hafi þeim einnig tekist að halda uppi léttum starfsanda þar sem umhyggja og virðing er höfð í heiðri. Sem yfirlyfjafræðingur apóteksins er ég afskaplega stolt af þeim.

Lykilhlutverk í bættu öryggi sjúklinga

Við sem vinnum í apótekinu vitum nákvæmlega hve mikilvæg störf lyfjatækna eru fyrir öryggi sjúklinga. Í sjúkrahúsapóteki Landspítala starfa um þrjátíu lyfjatæknar við fjölbreytt og sérhæfð verkefni. Lyfjatæknar sjá að mestu leyti um innkaup, pantanir og vörumóttöku lyfja fyrir allan spítalann. Lyfjakostnaður Landspítalans bæði á legudeildum og dag- og göngudeildum eru rúmir 4 milljarðar króna á ári, þetta er því mikil ábyrgð. Dreifing lyfja til allra deilda spítalans fer í gegnum sjúkrahúsapótekið. Lyfjatæknar annast einnig sérhæfða birgðastýringu fyrir um 20 deildir á spítalanum og lyfjaskömmtun fyrir sjúklinga á jafn mörgum deildum.

Á Landspítala er líka starfandi apótek sem afgreiðir lyf samkvæmt lyfseðli eins og önnur apótek en þó frábrugðið að því leyti að þaðan er afgreitt mikið af sjúkrahúslyfjum og lyfjum sem þurfa sérstaka undanþágu frá Lyfjastofnun. Nýjasta verkefni apóteksins er afgreiðsla og lyfjaumsýsla vegna meðferðarátaks gegn lifrarbólgu C en framkvæmdin á því er að mestu í höndum sjúkrahúslyfjatæknis. Síðast en ekki síst þá starfa lyfjatæknar í blöndunareiningu apóteksins. Þar fer fram mjög sérhæfð blöndun lyfja með smitgát, m.a. blöndun einstaklingsmiðarar næringar í æð og krabbameinslyfja. Þegar ofangreind upptalning er skoðuð sést hvað störf lyfjatækna á Landspítala eru fjölbreytt enda er stór hluti af umsýslu lyfja á Landspítala í höndum þeirra.

Framtíð lyfjatæknanáms óviss

Því miður þá hefur það heyrst nokkrum sinnum undanfarin misseri að hugsanlega verði námsbraut í lyfjatækni Heilbrigðisskólans lögð niður vegna lítillar aðsóknar. Það væri mikill skaði, því vonir hafa staðið til þess að taka inn nýjan hóp í námskrá fyrir sjúkrahúslyfjatækni um næstu áramót. Í gegnum árin hefur apótek Landspítala notið þess að taka töluverðan hóp lyfjatæknanema í starfsnám. Undanfarin misseri hefur þeim fækkað verulega og viðbrögð við auglýsingum eftir lyfjatæknum hafa verið dræm. Það er verulegt áhyggjuefni ef þetta nám verður fellt niður, ekki bara fyrir spítalann heldur líka fyrir apótekin. Þetta er þó alls ekki eina stéttin í heilbrigðiskerfinu þar sem meðalaldur hækkar og nýliðun gengur of hægt.

Ég óska lyfjatæknum Landspítala til hamingju með viðurkenninguna sem þeir fengu á ársfundi spítalans sem þeir eiga svo sannarlega skilið. Það er mjög gefandi og skemmtilegt að vinna á Landspítala því þar gefast tækifæri til fjölbreyttra starfa, starfsþróunar og faglegs umhverfis. Landspítala vantar fleiri lyfjatækna til að geta tryggt betur öryggi sjúklinga með aukinni þjónustu við deildir spítalans og nýliðun stéttarinnar. Ég hvet alla þá sem eru að íhuga nám að skoða lyfjatæknabraut Heilbrigðisskólans.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. júní.




Skoðun

Sjá meira


×