Fangelsismálayfirvöld stýrast af dómgreindarleysi Vilhelm Jónsson skrifar 30. júní 2016 07:00 Tæplega myndi nokkurs staðar í siðmenntuðum réttarríkjum, þar sem bankamenn hefðu tæmt banka innan frá, öllum verið stefnt saman í opið fangelsi og þeir afplánað síðan 20% af refsingu í anda sýndarmennsku. Með ólíkindum og vafasamt er að fangelsismálastjóri/stjórn geti að eigin geðþótta ákveðið með hvaða hætti refsingar séu teknar út, þvert á fallna dóma, ásamt því hvenær og hverjir ljúki afplánun á skemmri tíma og með öðrum forréttindum. Ný fangelsisbygging á Hólmsheiði hefur að geyma 56 klefa þar sem látið hefur vera stjórnast af flottræfilshætti þvert á efnahagslega getu. Það er umhugsunarefni að yfirvöld skuli réttlæta framkvæmd upp á þrjá miljarða sem leysir síðan takmarkaðan vanda. Lauslega má áætla að hver klefi ásamt annarri aðstöðu leggi sig á ríflega fimmtíu miljónir. Forgangsröðun er röng og fangelsið er alltof dýrt ásamt rekstrar- og fjármagnskostnaði. Höfuðvandinn er enn til staðar þar sem lokað er öðrum afplánunarrýmum sem nemur helmingi þessarar byggingar. Stjórnvöld ásamt ríkisstofnunum eru í engum tengslum við efnahagslega getu og þurfa að fara að gera sér grein fyrir að sjúkir og þeir sem minna mega sín gjalda of oft með lífi sínu vegna rangrar forgangsröðunar. Undangengin ár hafa biðlistar eftir fangelsisvist verið ca. 500 manns og sá biðlisti lengist lítið þar sem dómar fyrnast með einum og öðrum hætti. Aðeins lítill hluti þeirra sem hafa fengið dóm hafa framið ofbeldis- eða kynferðisbrot. Stærsti hópurinn er með dóm vegna umferðarlagabrota eða nytjatöku sem ekki er hægt að kalla til afplánunar vegna plássleysis sem láta þar að leiðandi ógert að að greiða sínar samfélagslegar skuldir. Meirihluti biðlistans uppfyllir líklega skilyrði til að afplána dóm sinn með vægari hætti eða samfélagsþjónustu. Flestir af þessum einstaklingum sem bíða eftir að sitja af sér viðkomandi dóm myndu síður vilja afplána refsingu í rammgirtu fangelsi, jafnvel þótt það sé í anda fimm stjörnu hótels. Ítrekað er búið að benda á ýmsar ódýrar leiðir til að uppræta biðlista þeirra sem bíða afplánunar á einfaldan og ódýran hátt. Hefði t.d. verið hægt að leysa sárasta vandann með gámabúðum sem hefði t.d. mátt setja innan girðingar á Litla-Hrauni, sem fangelsismálayfirvöldum þótti ekki boðlegt. Þessar sömu vinnubúðir eru nýttar í dag sem hótel ásamt því að hýsa skrifstofur lækna við Landspítalann.Ógæfumenn Meginþorri þeirra sem afplána ítrekaða refsivist eru fátækir, heimilislausir ógæfumenn sem dómstólar hafa ómældan kjark til að vísa umsvifalaust og án málalenginga í rammgirt fangelsi, enda ekki hvítflibbar. Vart getur talist eðlilegt eða ásættanlegt að smákrimmi sem hnuplar einhverju lítilræði þurfi að kosta samfélagið fleiri milljónir. Síbrotamaður hefur sjaldnast eftir refsivist að einhverju að hverfa og á litla sem enga möguleika á að fóta sig á ný í lífinu. Eðlilegra væri að vistun og eftirmeðferð ætti sér stað með hagkvæmari og uppbyggilegri hætti, jafnvel þó svo um harðan fíkil sé að ræða. Þó svo frelsissvipting verði að eiga sér stað, þá eru flestir hverjir meðvitaðir um að þurfa að taka út sína refsingu þótt ekki sé það innan rammgirtra fangelsisveggja, og myndu láta ógert að útskrifa sig sjálfir. Mun eðlilegra hefði og væri að opna fangelsi með kostnaðarminni hætti, t.d. í anda Kvíabryggju, sem myndi kosta innan við 30% af núverandi nýbyggingu ásamt minni rekstrarkostnaði. Jafnvel þótt fangi útskrifi sig sjálfur verða yfirvöld að taka meiri hagsmuni fram yfir minni og gera sér grein fyrir að oft er um óhörðnuð og illa áttuð ungmenni að ræða. Vart getur talist uppbyggilegt að vista brotna og illa áttaða einstaklinga í rammgirtu fangelsi eins og harðsvíraða glæpamenn. Yfirvöld gætu náð milljörðum í ríkissjóð af ógreiddum sektargreiðslum við innköllun hundraða manna, sem hafa fengið dóm til afplánunar, á einfaldan hátt, væri látið af þröngsýni og röngu verklagi. Tæplega getur talist eðlilegt að afbrotamaður sé með refsingu hangandi yfir sér árum saman vegna úrræðaleysis fangelsismálayfirvalda. Til lítils er að dæma afbrotamenn sem er síðan ekki fylgt eftir þar sem það er ekki hægt að fullnusta dóma vegna pláss- og fyrirhyggjuleysis og síðan fyrnast dómar í skjóli dráttar. Þessi háttur er aðeins til að fleiri sjá sér leik á borði að fara á skjön við lög og reglur ásamt því að hunsa sektargreiðslur sem þeir myndu frekar borga en þurfa að hefja afplánun. Ef fangelsismálayfirvöldum er svona annt um skjólstæðinga sína sem sumir hverjir eru ógæfu- og síbrotamenn þá hefði verið eðlilegra að veita fé til eftirmeðferðar til að viðkomandi einstaklingar næðu festu til að fóta sig áfram í lífinu, í stað þess að sækja í fyrri iðju. Svo vitnað sé í orð fangelsismálastjóra er engin uppbyggileg vinnuaðstaða fyrir fanga fyrir hendi á Hólmsheiði ásamt lítilli geðheilbrigðisaðstoð vegna fjárskorts. Slík meðferð verður ekki fengin með stífbónuðum og rammgerðum flísalögðum steypuklumpi, gaddavírsgirðingum ásamt flatskjáum og róandi geðlyfjum. Nokkuð ljóst er að hvítflibbar ásamt fleirum munu með sinni hógværð gera sér að góðu íburðarminni húsakynni en Hólmsheiði hefur að geyma.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ruglaðist Kristrún á flokkum, þegar hún fór í stjórnmál? - Það hefði verið einfaldara fyrir hana, að ganga strax í Framsókn, en að breyta Samfylkingunni í Framsókn Ole Anton Bieltvedt Skoðun Hvert er „útlendingavandamálið“? Karen Kjartansdóttir Skoðun Takk fyrir peninginn Inga Sæland Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Kallar veikleiki stjórnmálaflokkanna á þekkt andlit til liðsinnis? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Það er kominn tími á uppfærslu á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kennir bara meira! Aðalheiður Marta Steindórsdóttir Skoðun Af hverju Píratar? Daníel Þröstur Pálsson Skoðun Kennari fær milljón! Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Útlendingur eða innflytjandi? Paola Cardeans Skoðun Kennarar eru alltaf í fríi Stein Olav Romslo Skoðun Skoðun Skoðun Kennir bara meira! Aðalheiður Marta Steindórsdóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á uppfærslu á Íslandi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Af hverju Píratar? Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Kallar veikleiki stjórnmálaflokkanna á þekkt andlit til liðsinnis? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Ruglaðist Kristrún á flokkum, þegar hún fór í stjórnmál? - Það hefði verið einfaldara fyrir hana, að ganga strax í Framsókn, en að breyta Samfylkingunni í Framsókn Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningar og knattspyrna Haraldur Ingi Haraldsson skrifar Skoðun Hvert er „útlendingavandamálið“? Karen Kjartansdóttir skrifar Skoðun Útlendingur eða innflytjandi? Paola Cardeans skrifar Skoðun Sýnum kennurum virðingu Angela Árnadóttir skrifar Skoðun Mælum með Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi okkar allra Alma Möller skrifar Skoðun Kjarabarátta kennara Þormóður Logi Björnsson skrifar Skoðun Algengt neyðartilfelli Marianne E. Klinke skrifar Skoðun Gervigreind, sýklar, atómsprengjur og allt þetta fína: Hugleiðing um bók eftir Mustafa Suleyman Atli Harðarson skrifar Skoðun Hrátt hakk og heimabakstur fyrir kosningarnar Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Förum varlega með heita vatnið okkar Stefnir Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreind: Óseðjandi orkuþörf og ósvífin bjartsýni Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Rammíslenskt Aðalsteinn Leifsson skrifar Skoðun Föðurlaus börn og fjölskyldusjúkdómurinn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Kennarar eru alltaf í fríi Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Við þurfum breytingar Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði erum við? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Nei, ég er ekki hamstur á hjóli Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Niðurskurður?!... Jahá sá skal fyrst hefjast inn á Alþingi Íslendinga, með verulegri fækkun á fjöldi Alþingismanna þar á ferð Bakir Anwar Nassar skrifar Skoðun Að auka virði sitt Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fegurð landsins Adeline Tracz skrifar Skoðun Takk fyrir peninginn Inga Sæland Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Sósíalismi, alþjóðasamvinna og blómleg viðskipti Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Kennari fær milljón! Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Sjálfbærni er þjóðaröryggismál Fida Abu Libdeh skrifar Sjá meira
Ruglaðist Kristrún á flokkum, þegar hún fór í stjórnmál? - Það hefði verið einfaldara fyrir hana, að ganga strax í Framsókn, en að breyta Samfylkingunni í Framsókn Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Kallar veikleiki stjórnmálaflokkanna á þekkt andlit til liðsinnis? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Ruglaðist Kristrún á flokkum, þegar hún fór í stjórnmál? - Það hefði verið einfaldara fyrir hana, að ganga strax í Framsókn, en að breyta Samfylkingunni í Framsókn Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Gervigreind, sýklar, atómsprengjur og allt þetta fína: Hugleiðing um bók eftir Mustafa Suleyman Atli Harðarson skrifar
Skoðun Niðurskurður?!... Jahá sá skal fyrst hefjast inn á Alþingi Íslendinga, með verulegri fækkun á fjöldi Alþingismanna þar á ferð Bakir Anwar Nassar skrifar
Ruglaðist Kristrún á flokkum, þegar hún fór í stjórnmál? - Það hefði verið einfaldara fyrir hana, að ganga strax í Framsókn, en að breyta Samfylkingunni í Framsókn Ole Anton Bieltvedt Skoðun