Enski boltinn

Mkhitaryan kominn til Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mkhitaryan ásamt Mourinho.
Mkhitaryan ásamt Mourinho. vísir/getty
Það er skammt stórra högga á milli hjá Man. Utd þessa dagana en í dag tilkynnti félagið um kaup á Henrikh Mkhitaryan.

Hann kemur til félagsins frá Dortmund en Dortmund tilkynnti á dögunum að Mkhitaryan væri á förum til Man. Utd. Það var svo staðfest í dag.

Kaupverðið á þessum 27 ára gamla Armena var ekki gefið upp.

Hann var valinn leikmaður ársins í þýsku deildinni á síðustu leiktíð. Skoraði þá 18 mörk og lagði upp 20.

Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, er því búinn að fá þrjá af þeim fjórum leikmönnum sem hann var á eftir í sumar.

Hinir eru Eric Bailly og Zlatan Ibrahimovic. Fjórði leikmaðurinn er sagður vera Paul Pogba.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×