Enski boltinn

Risatilboði í Bonucci hafnað

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bonucci fagnar á EM.
Bonucci fagnar á EM. vísir/getty
Man. City gerði Juventus alvöru tilboð í varnarmanninn Leonardo Bonucci en fékk sínu ekki framgengt.

Tilboðið hljóðaði upp á 38 milljónir punda eða 6 milljarða íslenskra króna. Gott tilboð fyrir 29 ára leikmann.

Bonucci er aftur á móti afar dýrmætur fyrir Juventus og félagið hefur engan áhuga á því að sleppa honum.

Bonucci er búinn að spila um 250 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 13 mörk. Hann hefur spilað 62 landsleiki fyrir Ítalíu og skorað fjórum sinnum.

Nýr stjóri City, Pep Guardiola, er á fullu þessa dagana að styrkja liðið. Hann er búinn að fá spænska landsliðsmanninn Nolito, Úkraínumanninn Oleksandr Zinchenko og Ástralann Aaron Mooy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×