Enski boltinn

Mertesacker: Fullkomin kaup fyrir Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Per Mertesacker er ánægður með nýja liðsfélaga sinn Granit Xhaka en Arsenal keypti hann frá þýska liðinu Borussia Mönchengladbach fyrir 30 milljónir punda í sumar.

Hinn 23 ára gamli Granit Xhaka spilaði með svissneska landsliðinu á EM í Frakklandi og fékk því aðeins lengra frí en aðrir leikmenn Arsenal.

Mertesacker bindur miklar væntingar til nýja miðjumannsins þótt að hann viðurkenni að hafa ekki umgeng

„Ég þekki hann ekki persónulega en það skiptir ekki máli. Við munum ná fljótt vel saman því hann er góður leikmaður og hefur gert svo mikið fyrir Borussia Mönchengladbach," sagði Per Mertesacker í viðtali við Sky Sports.

„Hann talar þýsku og það verður því ánægjulegt fyrir mig að hjálpa honum að komast inn í hlutina hjá okkur," sagði Mertesacker.

„Hann er leiðtogi og það er mjög mikilvægt og þá sérstaklega á miðjunni. hann hefur mjög gott viðhorf, er rólegur með boltann og kemur með mikið til liðsins," sagði Mertesacker.

„Hann er góður sendingamaður og mun stjórna hraðanum hjá okkur. Ég hlakka til að sjá hvernig hann fer af því og hversu yfirvegaður hann verður bæði á æfingum og á leikjum. Hann er fullkomin kaup fyrir okkur," sagði Mertesacker.

Granit Xhaka.Vísir/EPA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×