Fótbolti

Theodór Elmar lék síðasta korterið í fyrsta leik tímabilsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Elmar í leik með AGF.
Elmar í leik með AGF. Vísir/Getty
Theodór Elmar Bjarnason kom inn af bekknum í 1-2 sigri AGF á SönderjyskE í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar en Elmar lék síðustu fimmtán mínúturnar.

Elmar er nýkominn aftur til liðs við AGF eftir Evrópumótið en í hans fjarveru komust liðsfélagar hans 2-0 yfir með mörkum frá Stephan Petersen og Mustafa Amini.

Simon Kroon náði að minnka muninn fyrir SönderjyskE á heimavelli en lengra komust þeir ekki og fögnuðu AGF sigri í fyrsta leik tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×