Gylfi og Joe Allen sameinaðir á ný á miðju Swansea? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2016 09:00 Joe Allen og Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu um boltann í leik Liverpool og Swansea á síðustu leiktíð. Vísir/Getty
Swansea City hefur mikinn áhuga á að fá velska miðjumanninn Joe Allen aftur til félagsins en enn óvissa um framtíð Joe Allen hjá Liverpool. Sky Sports segir frá því að forráðamenn Swansea ætli að bíða eftir því hvað kemur út úr samningarviðræðum Joe Allen og Liverpool. Liverpool keypti Joe Allen á fimmtán milljónir punda árið 2012 en hann á enn eftir eitt ár af samningi sínum við Liverpool. Allen hefur ekki enn hafið viðræðum um nýjan samning. Hinn 26 ára gamli Joe Allen hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Liverpool síðan að Jürgen Klopp tók við í október síðastliðnum og byrjaði bara átta leiki í ensku úrvalsdeildinni. Joe Allen stóð sig hinsvegar mjög vel með velska landsliðinu á EM í Frakklandi en Wales komst alla leið í undanúrslitin og Allen var valinn í lið mótsins hjá UEFA. Samkvæmt heimildum Sky Sports er Swansea einnig að leita að sér af tveimur sóknarmönnum til þess að bæta sóknarleik liðsins. Gylfi Þór Sigurðsson hélt eiginlega uppi sóknarleik Swansea eftir áramót þar sem hann skoraði 9 af 11 mörkum sínum á síðustu leiktíð. Komi Joe Allen til Swansea þá verða hann og Gylfi sameinaðir á ný á miðju félagsins en Gylfi var með 7 mörk í 18 leikjum í seinni hluta 2011-12 tímabilsins eftir að hafa komið á láni frá Hoffenheim. Allen var þá í stóru hlutverki á miðju Swansea-liðsins. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea, reyndi að taka bæði Allen og Gylfa með sér yfir til Liverpool. Allen fór en Gylfi vildi frekar fara til Tottenham.
Enski boltinn Mest lesið „Get ekki verið partur af sambandi sem leyfir rasisma“ Sport Urðað yfir norska liðið: „Þetta var sjokkerandi lélegt“ Fótbolti Eiður var óviss um Andra: „Hann var lítill og feitlaginn strákur“ Fótbolti Sýndu Kolbeini hve góður hann hefur verið: „Er með marga vini í kringum sig“ Fótbolti Fóru illa með Haaland og félaga Fótbolti Heimir vill írskan Aron Einar Fótbolti Dagskráin í dag: Ísland mætir Tyrkjum vonandi Fótbolti Skelfileg mistök Kellehers og tap hjá Heimi Fótbolti Frostið veldur óvissu og leiknum við Tyrki mögulega frestað Fótbolti Enn tapar Vardy fyrir Rooney í dómssalnum Fótbolti Fleiri fréttir Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Sjá meira