Klopp: Myndi ekki eyða 100 milljónum í leikmann þó ég gæti það Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. júlí 2016 11:30 Jürgen Klopp hefur ekki 100 milljónir til að eyða í einn leikmann og er bara sáttur. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur engar áhyggjur af eyðslu stóru liðanna á Englandi þetta sumarið en hann segir að verðandi 100 milljóna punda kaup Manchester United á Paul Pogba sé röng aðferðafræði. Klopp er búinn að festa kaup á Sadio Mané frá Southampton og Georginio Wijnaldum en kaup Liverpool blikna í samanburði við 100 milljónirnar sem United ætlar að eyða í einn og sama leikmanninn. Að eyða svona miklum pening í einn leikmann er ekki eitthvað sem Jürgen Klopp hefur áhuga á, að hans sögn. Hann vill frekar byggja upp lið. „Ef þú kaupir einn leikmann fyrir 100 milljónir punda og hann meiðist fer allt í vaskinn. Daginn sem þetta verður venjulegt í fótboltanum verð ég atvinnulaus því fótboltinn snýst um að spila saman,“ segir Klopp sem er í æfingaferð með Liverpool í Bandaríkjunum. „Maður vill alltaf vera með bestu leikmennina en það er líka mikilvægt að byggja upp hóp. Önnur félög geta eytt meiri pening en við og keypt bestu leikmennina. Ég vil gera hlutina öðruvísi. Ég myndi meira að segja gera þetta öðruvísi þó ég gæti eytt svona miklu.“ „Ég veit ekki hversu miklu við getum nákvæmlega eytt því enginn er búinn að banna mér neitt hingað til. Ef við eyðum peningum er það til að byggja upp lið. Alvöru lið,“ segir Jürgen Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Enski boltinn UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Fótbolti Mældu tímann í Kórnum: „Mér finnst þetta alveg galið“ Íslenski boltinn Ótrúlegir vítadómar í Þýskalandi: Tóku boltann upp tvisvar í sama leiknum Fótbolti Konaté mætti með nýstárlega grímu til æfinga Fótbolti Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Enski boltinn Njarðvík semur við eina unga og efnilega Körfubolti Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Sjá meira