NBA-leikmaður skilur ekkert í Paul Pogba Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2016 07:00 Nikola Vucevic, Paul Pogba og Jose Mourinho. Vísir/Getty
Paul Pogba verður fljótlega kynntur sem nýr leikmaður Manchester United en enska félagið mun þá gera hann að dýrasta leikmanni heims samkvæmt erlendum fjölmiðlum. Paul Pogba hefur átt fjögur frábær ár hjá ítalska félaginu Juventus sem hefur unnið ítalska meistaratitilinn öll árin hans hjá félaginu. Juventus verður sem fyrr í Meistaradeildinni á næsta tímabili en Manchester United þarf að sætta sig við að spila í Evrópudeildinni. NBA-leikmaðurinn Nikola Vucevic skilur ekkert í þessari ákvörðun Paul Pogba að óska eftir því að fara frá Juventus til Manchester United. Vucevic velti þessari ákvörðun Frakkans fyrir sér á Twitter. „Svo Pogba er að yfirgefa einn besta klúbbinn í heimi til að ganga til liðs við félag sem er ekki einu sinni í Meistaradeildinni," skrifaði Nikola Vucevic á Twitter-síðu sína. 2006-17 verður annað tímabilið á síðustu þremur árum sem Manchester United missir af Meistaradeildinni. Hlutskipti Pogba og nýju liðsfélaga hans í Manchester United er að keppa í Evrópudeildinni á fimmtudögum. Nikola Vucevic fékk að sjálfsögðu talsverð viðbrögð við færslu sinni en þessi 25 ára og 213 sentímetra Svartfellingur er leikmaður Orlando Magic í NBA-deildinni. Manchester United er eitt frægasta fótboltafélag heims og það kemur flestum Íslendingum ekki mikið á óvart að Pogba vilji spila í leikhúsi draumanna í stað þess að spila áfram á Ítalíu. So Pogba is leaving one of the top clubs in the world to join a team that's not even in the champions league??? — Nikola Vucevic (@NikolaVucevic) July 20, 2016
Enski boltinn Mest lesið Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet Sport Fékk rautt spjald fyrir að pissa Fótbolti Vill eignast lið í hverri heimsálfu Fótbolti Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Körfubolti Níræð tugþrautarkona með 35 heimsmet Sport Fyrstur til að skora fjögurra stiga körfu Körfubolti Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Enski boltinn Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“ Íslenski boltinn „Við erum með YouTube-gaur að berjast við besta boxara sögunnar“ Sport Jákvætt að aðstoðarþjálfarinn sé ekki á bekknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Félix á leið til Chelsea á meðan Gallagher fer í hina áttina Guardiola: Haaland líður betur en á sama tíma í fyrra Þurftu að stækka klefann hjá Chelsea Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Meistararnir byrja á sterkum sigri Brentford byrjar tímabilið á sigri Stefán Teitur fær þriðja þjálfarann í jafn mörgum leikjum Brady ánægður með ráðherrasoninn „Engar áhyggjur, við hittumst aftur“ Slot sammála Klopp varðandi hádegisleiki Durán sökkti Hömrunum Íslendingar á Englandi: Jóhann Berg og Willum Þór á skotskónum Milner sló met Giggs og tíu Newcastle-menn lönduðu sigri Havertz og Saka afgreiddu Úlfana „Ansi mikið breytt“ með komu Slots Sagði eyrnabólgu skýra fjarveru Sancho Salah sjóðheitur af stað að vanda „Ekki gott að við séum með 43 leikmenn“ „Það sjá allir hve mikilvægir varamenn eru“ Zirkzee hetjan í sínum fyrsta leik Schmeichel skammar Shaw fyrir að spila á EM Man. City dottið niður í ellefta sætið yfir mestu eyðsluna Ten Hag um kaupin á öllum þessum Ajax mönnum: Ekki bara mín ákvörðun Hafa eytt fjörutíu milljörðum í fyrrum lærisveina stjórans Ed Sheeran eignast hlut í ensku félagi en frábiður sér kvart og kvein Spurs setur Bissouma í bann fyrir hláturgasmyndbandið Liverpool selur einn af ungu strákunum sínum Fann fimm ástæður fyrir því af hverju Man. City verður ekki enskur meistari Vonarstjarna City og Noregs fótbrotnaði Sjá meira