Ætlaði að tilkynna um þjófnað en sótti þess í stað um sem hælisleitandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2016 11:21 Maðurinn ætlaði sér að tilkynna um stolið veski í þýsku borginni Heidelberg en það reyndist ekki svo auðvelt. Vísir/Getty
Kínverskur ferðamaður dvaldi í tvær vikur á meðal flóttamanna í Þýskalandi fyrir algjöran misskilning. Maðurinn hafði leitað til yfirvalda í þeim tilgangi að tilkynna um þjófnað á veski sínu en úr varð að hann sótti um hæli í Þýskalandi. Fyllti hann út rangt eyðublað. Í þýskum miðlum kemur fram að bakpokaferðalangurinn 31 árs gamli tali hvorki þýsku né ensku, hafi gengist undir læknisskoðun auk þess sem fingraför voru tekin af honum. Starfsmaður Rauða krossins komst síðar að því að veski Kínverjans hafði verið stolið í Heidelberg. Í stað þess að leita til lögreglu skráði ferðamaðurinn sig sem hælisleitanda. Ferðamaðurinn mætti snemma í júlí á gistiheimili ásamt fleiri flóttamönnum. Haft er eftir starfsmanni Rauða krossins að hann hafi skorið sig úr hópnum, verið allt öðruvísi og ósjálfbjargra. Grunur starfsmannsins, Christoph Schluetermann, hafi svo fengist staðfestur með aðstoð þýðingarforrits sem skilaði frösum á borð við: „Ég vil fara í ferðalag til útlanda.“ Kom upp úr krafsinu að Kínverjinn ætlaði einnig að ferðast til Ítalíu og Frakklands.Ímyndaði sér Evrópu öðruvísi Áður en að því kom hafði Kínverjinn leyft yfirvöldum að taka fingraför hans auk þess sem vegabréf og vegabréfsáritun voru tekin af honum. Hann kippti sér ekki upp við það. Í framhaldinu gekkst hann undir læknisskoðun og fékk sömu gögn í hendur og aðrir flóttamenn. Hann snæddi á gistiheimili fyrir flóttamenn og fékk dagpeninga. Schluetermann segir að starfsfólk gistiheimilsins hafi gert tilraunir til að ná í fólk til að reyna að komast til botns í málinu. Vandræði með vegabréfsáritun mannsins hafi tafið enn frekar fyrir því. Þá hefur BBC eftir þýska miðlinum WDR að maðurinn hafi ekki reiðst þegar upp komst um mistökin, tveimur vikum síðar. Hann hafi yfirgefið Þýskaland og látið þau orð falla að Evrópa væri öðruvísi en hann hefði reiknað með.
Mest lesið Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Erlent Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Erlent Heilsugæslan lokar fyrir aðgengi Samgöngustofu að sjúkraskrám Innlent Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Erlent Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Erlent Afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu sé lokið Innlent Bíll fullur af börnum, líkamsárás og umferðaróhöpp Innlent Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú Innlent Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Erlent Samið í nótt: Stjórnvöld heita lausnum á mönnunarvandanum Innlent Fleiri fréttir Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Sjá meira