Enski boltinn

Pep til í að selja Nasri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Samir Nasri.
Samir Nasri. vísir/getty
Samkvæmt heimildum Sky Sports þá ætlar Man. City að selja Frakkann Samir Nasri.

Félagið hefur látið það spyrjast út að önnur lið megi senda tilboð í leikmanninn.

Hin nýríku ítölsku félög, AC Milan og Inter, eru bæði sögð vera áhugasöm sem og Roma.

Talið er að Nasri sé falur fyrir um 17 milljónir punda eða 2,6 milljarða íslenskra króna.

Nasri spilaði aðeins sjö leiki fyrir City á síðustu leiktíð og Pep Guardiola, stjóri liðsins, hefur engin not fyrir leikmanninn.

Til að bæta gráu ofan á svart þá mætti Nasri of feitur til æfinga og var neyddur til þess að æfa einn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×