Zlatan tryggði United Samfélagsskjöldinn | Sjáðu mörkin Anton Ingi Leifsson skrifar 7. ágúst 2016 16:45 Zlatan í eldlínunni. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic tryggði Manchester United 2-1 sigur gegn Leicester í leiknum um Samfélagsskjöldinn, en markið kom sjö mínútum fyrir leikslok. Þetta er fyrsti titill Manchester United undir stjórn Jose Mourinho, en hann tók við liðinu af Louis van Gaal í sumar. Þetta var einnig fyrsta mark Zlatan í alvöru leik. Englandsmeistararnir voru í tvígang nálægt því að komast yfir í sömu sókninni, en Shinji Okazaki átti meðal annars skalla í slána. Nær komust þeir ekki í bili. Eftir hálftíma leik kom fyrsta markið. Jese Lingard labbaði þá í gegnum vörn Leicester og lagði boltann undir Schmeichel sem stóð varnarlaus í marki Leicester. 1-0 fyrir bikarmeisturunum og þannig var staðan í hálfleik. Leicester gerði tvöfalda breytingu í hálfleik og það færðist smá líf yfir lið Leicester sem jafnaði svo á 52. mínútu þegar Maraoune Fellaini gerði sig seka um ömurleg mistök. Vardy þakkaði pent fyrir sig og jafnaði metin með auðveldu marki. Allt leit út fyrir að framlengja þyrfti leikinn eða allt þangað til á 83. mínútu þegar röðin var komin að hinum sænska Zlatan Ibrahimovic. Antonio Valencia fékk boltann úti á hægri kantinum, gaf hann fyrir markið þar sem Zlatan skallaði boltann í fjærhornið og kom United í 2-1. Fleiri urðu mörkin ekki og sænski snillingurinn því hetja United í sínum fyrsta almennilega leik á Englandi. Ekki amaleg byrjun það, en enska deildin hefst svo um næstu helgi.Leicester 0-1 Man Utd Leicester 1-1 Man Utd Leicester 1-2 Man Utd
Enski boltinn Mest lesið Keppinautur Antons í stóru lyfjahneyksli sem komið er á borð FBI Sport Ældi tvisvar þegar kærastan mætti í fyrsta sinn á leik Sport Pabbinn telur að bænirnar hafi komið til bjargar Fótbolti ÍR og Grindavík sendu skýr skilaboð Íslenski boltinn Hetja Tyrkja í bann fyrir úlfafagnið Fótbolti Óskar Hrafn ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR Fótbolti Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana Handbolti Andrea og Arnar langfyrst á Akureyri Sport Bannar eiginkonurnar ef þeir vinna leikinn Fótbolti Dýrmætur sigur Þórs en toppliðið skoraði ekki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verður áfram hjá Manchester United Evrópumeistarinn Bronze á leið til Chelsea Ratcliffe lætur 250 starfsmenn Man United fara Arsenal með augastað á Calafiori Gefur aðeins grænt ljós á viðræður við Manchester United Undrabarnið Gray til Tottenham Caldentey fer frá Evrópumeisturum Barcelona til Arsenal Man Utd horfir enn á ný til fyrrum lærisveins Ten Hag Borga yfir þrjátíu milljarða fyrir þrjú ár framan á búningum Rauðu djöflanna Manchester United hefur gengið frá kaupum á yfirmanni knattspyrnumála Liverpool afþakkaði boð Newcastle um Gordon fyrir Quansah Elísabet ekki ráðin til Villa Keane bað Maguire afsökunar: „Ég fór yfir strikið“ Nistelrooy snýr aftur til Manchester United Þjálfari Willums á leið til United Shaq vill kaupa hlut í West Ham Manchester United missir fleiri stjörnur Kvennalið Man Utd fært svo pláss sé fyrir karlaliðið Íhuga að selja nafnaréttinn á Old Trafford Mun ekki leyfa kaup og sölur á uppsprengdu verði Vilja spila leik í ensku C-deildinni á bandarískri grundu Alan Hansen útskrifaður af spítalanum Nýr leikmaður Chelsea sagður vera besti Brassinn síðan Neymar kom fram Bæjarar halda áfram að taka stjörnur úr ensku úrvalsdeildinni Eigandi Roma tryggir sér kauprétt á Everton Enski boltinn snýr aftur heim Beta sterklega orðuð við Aston Villa Man United má ekki kaupa leikmenn af Nice Nýliðarnir ráða manninn sem Forest lét fara Arne Slot fær auðveldustu byrjunina í deildinni Sjá meira