Íslenski boltinn

Loksins unnu Þórsarar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jóhann Helgi spilaði í dag.
Jóhann Helgi spilaði í dag. vísir/gety
Þórsarar bundu enda á fimm leikja taphrinu sína í Inkasso-deild karla með 2-1 sigri á HK í síðasta leik fjórtándu umferðar.

Bjarki Aðalsteinsson kom Þór yfir á sautjándu mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik, en á 52. mínútu tvöfaldaði Gunnar Örvar Stefánsson forystuna.

Þannig stóðu leikar allt þangað til á 83. mínútu þegar Hákon Ingi Jónsson minnkaði muninn fyrir HK af vítapunktinum, en nær komust gestirnir úr Kópavogi ekki og lokatölur 2-1.

Þór er í fimmta sætinu með 22 stig, en HK er í tíunda sætinu með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×