Enski boltinn

Jón Daði þúsundasti leikmaðurinn til að spila deildarleik fyrir Wolves

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Daði við komuna til Wolves.
Jón Daði við komuna til Wolves. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson er í byrjunarliði Úlfana sem mæta Roterham United á útivelli í fyrstu umferð ensku B-deildarinnar í knattspyrnu.

Jón Daði gekk í raðir Wolves frá Kaiserslautern á dögunum og er strax hent í byrjunarliðið.

Hann verður því þúsundasti leikmaðurinn til að spila deildarleik fyrir Wolves, en þetta kemur fram á opinberri Twitter-síðu Wolves.

Þetta er mikill heiður hjá Jóni Daða að bera hjá eins sögufrægu félagi og Wolves er.

Leikur Rotherham og Wolves hófst klukkan 14:00, en staðan er 2-1 fyrir Rotherham þegar þetta er skrifað.


Tengdar fréttir

Jón Daði farinn til Úlfanna

Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson er á leið í enska boltann en hann samdi í dag við Wolves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×