Enski boltinn

Zlatan: Rooney er fullkominn samherji

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan og Rooney á æfingu.
Zlatan og Rooney á æfingu. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic er mjög spenntur fyrir því að spila með Wayne Rooney í vetur.

Svíinn hefur trú á því að þeir geti náð frábærlega saman og séð til þess að Man. Utd skori haug af mörkum í vetur.

Zlatan mun spila sinn fyrsta leik á Old Trafford í kvöld er góðgerðarleikur Wayne Rooney fer fram.

„Allir góðir leikmenn eiga að geta unnið með öðrum góðum leikmönnum. Það á ekki að vera neitt mál,“ sagði Zlatan.

„Ég sagði fyrir mörgum árum að minn fullkomni samherji í framlínunni væri Wayne Rooney. Hann vinnur ekki bara fyrir sjálfan sig heldur fyrir framherjann og liðið. Ég er ótrúlega glaður með að fá að spila með honum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×