Fótbolti

Vardy gæti spilað gegn Barcelona í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vardy fór í úlnliðsaðgerð eftir EM. Þökk sé Íslandi komst hann snemma í aðgerðina.
Vardy fór í úlnliðsaðgerð eftir EM. Þökk sé Íslandi komst hann snemma í aðgerðina. vísir/getty
Það er áhugaverður leikur í International Champions Cup í kvöld er Englandsmeistarar Leicester City spila við Spánarmeistara Barcelona.

Leikur liðanna fer fram í Stokkhólmi. Fín upphitun hjá Leicester fyrir átökin í Meistaradeildinni í vetur.

Jamie Vardy gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Leicester í sumar en hann er að jafna sig eftir úlnliðsaðgerð.

„Við verðum að sjá til hvernig höndin lítur út þegar gifsið kemur af en vonandi get ég spilað einhverjar mínútur í þessum leik,“ sagði Vardy.

Leikurinn hefst klukkan 18.00 og er í beinni á Stöð 2 Sport 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×