Enski boltinn

Lacazette fer fyrir rétta upphæð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lacazette fagnar í leik með Lyon.
Lacazette fagnar í leik með Lyon. vísir/getty
Það er ekki enn loku fyrir það skotið að framherjinn Alexandre Lacazette fari til Arsenal.

Lyon hefur þegar hafnað 30 milljón punda tilboð frá Arsenal í framherjann en talið er að Lundúnaliðið ætli að hækka það tilboð.

„Hann má fara ef Lyon vill það,“ sagði Bruno Genesio, þjálfari Lyon, ekkert of bjartsýnn á að halda leikmanninum.

„Sumum tilboðum er ekki hægt að hafna. Ég veit að félagið vill halda honum en maður veit aldrei hvað gerist.“

Lacazette hefur skorað 92 mörk í 230 leikjum fyrir Lyon. Talið er að hann megi fara fyrir 40 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×