Enski boltinn

Roma skellti Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dzeko fagnar fyrir Roma í nótt.
Dzeko fagnar fyrir Roma í nótt. vísir/getty
Roma vann 2-1 sigur á Liverpool í æfingaleik liðanna í St. Louis í Bandaríkjunum í nótt.

Edin Dzeko og Mohamed Salah skoruðu mörk Roma en Sheyi Ojo skoraði mark Liverpool.

Liverpool var aðeins búið að fá á sig eitt mark í sex leikjum á undirbúningstímabilinu fyrir þennan leik.

Næsti leikur Liverpool er gegn Barcelona á Wembley á laugardag og svo lýkur undirbúningstímabilinu með leik gegn Mainz á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×