Fótbolti

Ragnar og félagar með sigur í fyrsta leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar Sigurðsson fór á kostum á EM og er eftirsóttur.
Ragnar Sigurðsson fór á kostum á EM og er eftirsóttur. vísir/epa
Ragnar Sigurðsson og félagar í Krasnodar unnu góðan sigur á Tom Tomsk, 3-0, í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Um var að ræða fyrsta leik liðsins í deildarkeppninni á þessu tímabili. Ragnar hefur verið orðaður við mörg félög í sumar en hann er í það minnsta mættur til leiks og lék allan leikinn fyrir Krasnodar í kvöld.

Fedor Smolov gerði tvö mörk fyrir Krasnodar og Ari eitt. Liðið er því með þrjú stig eftir eina umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×