Enski boltinn

Leicester að ná í 19 ára miðjumann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bartosz Kapustka í leik með pólska landsliðinu.
Bartosz Kapustka í leik með pólska landsliðinu. vísir/getty
Englandsmeistararnir í Leicester City er við það að ganga frá kaupum á Bartosz Kapustka fyrir 7,5 milljónir punda frá pólska liðinu Cracovia.

Leicester hefur verið í samningaviðræðum við forráðamenn Cracovia í töluvert langan tíma og hefur lengi staðið til að þessi 19 ára miðjumaður gangi til liðs við Englandsmeistarana.

Pólska félagið mun hafa hafnað tilboði upp á 6,25 milljónir punda en samkvæmt Sky Sports hefur enska félagið lagt fram annað tilboð sem hafi verið samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×