Enski boltinn

Alex McCarthy til Southampton

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex McCarthy er farinn til Southampton.
Alex McCarthy er farinn til Southampton. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarfélagið Southampton hefur gegnið frá samningi við Alex McCarthy frá Crystal Palace en markvörðurinn hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Hann verður því hjá félagið til ársins 2019 og gæti staðið í rammanum fyrir Southampton. Þar mun hann veita Fraser Forster mikla samkeppni um aðalmarkvarðarstöðuna.

„Ég er mjög glaður með að hafa fundið mér klúbb af þessari stærðargráðu. Þetta er klúbbur sem er þekktur fyrir það að framleiða unga og öfluga leikmenn,“ segir McCarthy.

„Maður getur verið spenntur fyrir því að taka þátt í Evrópudeildinni og þá mun maður taka þátt í fleiri mikilvægum leikjum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×