Enski boltinn

Sané staddur í Manchester

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sané hefur leikið fjóra A-landsleiki fyrir Þýskaland.
Sané hefur leikið fjóra A-landsleiki fyrir Þýskaland. vísir/getty
Allt virðist benda til þess að þýska ungstirnið Leroy Sané sé á förum til Manchester City frá Schalke 04.

Þýska félagið greindi fra því á Twitter í dag að Sané væri staddur í Manchester og hefði ekki farið með Schalke í æfingaferð til Austurríkis.

Talið er að City muni borga Schalke um 35 milljónir punda fyrir Sané sem þykir einn efnilegasti leikmaður Evrópu.

Hinn tvítugi Sané skoraði átta mörk í 33 deildarleikjum með Schalke á síðasta tímabili.

Sané var valinn í þýska landsliðið fyrir EM í Frakkland þar sem hann kom við sögu í einum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×