Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hyggst hætta notkun einkarekinna fangelsa Birta Svavarsdóttir skrifar 19. ágúst 2016 15:54 Sally Yates aðstoðardómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Getty
Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur tekið þá ákvörðun að hætta notkun einkarekinna fangelsa í Bandaríkjunum. Bæði telja embættismenn ráðuneytisins þau vera minna örugg og veita verri betrunarvist en ríkisrekin fangelsi. Þetta kemur fram í frétt Washington Post. Samkvæmt skýrslu frá eftirlitsmanni á vegum ráðuneytisins sem gefin var út í seinustu viku eru einkarekin fangelsi slakari þegar kemur að þjónustu við fanga og öryggis- og eftirlitsmálum heldur en sambærileg ríkisrekin fangelsi. Til að mynda eru líkamsárásir, bæði meðal fanga og fangavarða, mun fleiri í þeim einkareknu auk þess sem uppþot meðal fanga eru algengari og hafa oft mjög alvarlegar afleiðingar. Í maí 2012 olli uppþot meðal fanga í Adams County Correctional Center í Mississippi í Bandaríkjunum því að tuttugu manns særðust og fangavörður var myrtur. Orsök uppþotsins má samkvæmt skýrslu stofnunarinnar rekja til óánægju fanga með gæði matar og skort á læknisþjónustu. Samkvæmt minnisblaði frá aðstoðardómsmálaráðherra, Sally Yates, er stefnan tekin á það að draga úr, eða endurnýja ekki samninga við stjórnendur einkarekinna fangelsa. Markmiðið er svo að hætta algerlega notkun þeirra. Nær þetta til þrettán stofnana í Bandaríkjunum sem samtals hýsa um 22 þúsund fanga.
Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Nú beinast öll spjót að bönkunum Innlent Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú Innlent Bifreið í ljósum logum við Stuðlaháls Innlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Erlent Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Erlent Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Erlent Óvenjulegt ættarmót við Snorrabraut Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Fleiri fréttir Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Sjá meira