Eru í viðræðum um hernaðarsamstarf Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. ágúst 2016 07:00 Sýrlenski stjórnarherinn hefur gert harðar árásir á Aleppo undanfarna daga, sem kostað hafa tugi almennra borgara lífið. Nordicphotos/AFP
Bandaríkjamenn og Rússar hafa verið að semja um hernaðarsamstarf í Sýrlandi, sem myndi beinast gegn uppreisnarmönnum í borginni Aleppo. Reuters fréttastofan skýrir frá þessu og vitnar í rússnesku fréttastofuna RIA, sem hefur þetta eftir rússneska varnarmálaráðherranum Sergei Shoigu. Bandaríkjamenn hafa hins vegar til þessa stutt suma sýrlenska uppreisnarmenn gegn stjórnarhernum, nefnilega þá uppreisnarmenn sem segjast vera hófsamir, en Rússar hafa dyggilega stutt Sýrlandsstjórn gegn öllum uppreisnarmönnum, hvort sem þeir teljast hófsamir eða ekki. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, leggur hins vegar mikla áherslu á að hófsamir uppreisnarmenn slíti algerlega öll tengsl við hina, sem tengjast Al Kaída og öðrum hryðjuverkasamtökum: „Við teljum enn vera nauðsynlegt að leyfa engum alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum að ná yfirhöndinni og tryggja að raunverulegar samningaviðræður hefjist milli allra sýrlenskra fylkinga,“ hefur rússneska fréttastofan TASS eftir honum. Um helgina hitti Lavrov hinn þýska starfsbróður sinn, Frank-Walter Steinmeier, sem segir nauðsynlegt að koma á langvarandi vopnahléi í Aleppo. Hann vildi einnig koma á fót loftbrú, þar sem flogið yrði með fólk frá borginni til að koma því út af átakasvæðinu. „Ég stend fast við það að þriggja tíma vopnahlé á dag dugar ekki,“ segir Steinmeier, samkvæmt frásögn þýska vikuritsins Die Zeit. „Ástandið á fólki í Aleppo er skelfilegt. Það getur ekki og má ekki halda svona áfram.“ Lavrov var samt ekki á sama máli. Hann telur enn að þriggja tíma vopnahlé á dag nægi, ásamt því að opna fjórar flóttaleiðir fyrir fólk svo það komist frá borginni landleiðina. Þýska stjórnin sakar Rússa um að sýna íbúum Aleppo kaldlyndi. Stephen Seibbert, talsmaður stjórnarinnar, segir allt tal um þriggja tíma vopnahlé á dag, sem eigi að hljóma eins og verið sé að koma til móts við íbúana, sé í raun kaldranaleg afstaða: „Allir vita að þessi tími dugar engan veginn til að ná að sinna því fólki sem býr við algera örvæntingu.”
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Erlent Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Erlent Afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu sé lokið Innlent Bíll fullur af börnum, líkamsárás og umferðaróhöpp Innlent Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú Innlent Samið í nótt: Stjórnvöld heita lausnum á mönnunarvandanum Innlent Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Erlent Nú beinast öll spjót að bönkunum Innlent Bifreið í ljósum logum við Stuðlaháls Innlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Sjá meira