Suður-afrískur barnaræningi fær tíu ára dóm Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2016 11:19 Celeste Nurse, móðir stúlkunnar, sem rænt var. Vísir/AFP
Dómstóll í Suður-Afríku hefur dæmt konu í tíu ára fangelsi fyrir að rænt ungabarni á sjúkrahúsi fyrir nítján árum síðan og alið það upp sem sitt eigið. Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Suður-Afríku og víðar. Konan, sem er 51 árs, var handtekin árið 2015 eftir að fólk tók eftir ótrúlegum líkindum með stelpunni, Zephany Nurse, og annarri stelpu í skólanum. Lífsýni voru tekin og kom í ljós að þær voru í raun systur.Í frétt BBC er haft eftir dómaranum John Hlophe að konan hafi svikið Zephany með gjörðum sínum. Sagði Hlophe að konan hafi haft ótakmarkaðan tíma til að skila barninu en hafi kosið að gera það ekki. Fjölmiðlar í Suður-Afríku höfðu reglulega fjallað um árlega minnisstund foreldra stúlkunnar á afmælisdegi dótturinnar, og því segir dómarinn að útilokað sé að konan hafi ekki vitað að foreldarnir væru enn að leita að barni sínu. Þá sagði dómarinn að ákvörðun hennar að lýsa yfir sakleysi sínu og sjálf segjast vera fórnarlamb í málinu hafi vegið til þyngingar refsingar. Suður-afrískir fjölmiðlar hafa áður greint frá því að fórnarlambið, það er stúlkan, vilji ekki taka upp samband við raunverulega foreldra sína og álíti konuna sem rændi henni vera móður sína. Líffræðileg amma stúlkunnar sagði eftir að dómur féll að hún væri ekki sérstaklega ánægð með lengd dómsins, en vonaðist til að fjölskyldunni gæfist nú tækifæri á að kynnast stúlkunni og mynda tengsl.
Mest lesið Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Erlent Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Erlent Afar ólíklegt að byrlunar- og símastuldarmálinu sé lokið Innlent Bíll fullur af börnum, líkamsárás og umferðaróhöpp Innlent Höfum ekki efni á svona stórkarlalegri Ölfusárbrú Innlent Samið í nótt: Stjórnvöld heita lausnum á mönnunarvandanum Innlent Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Erlent Nú beinast öll spjót að bönkunum Innlent Bifreið í ljósum logum við Stuðlaháls Innlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Sjá meira