Lífið

Rihanna slapp frá slummu Drake

Stefán Árn Pálsson skrifar
Drake og Rihanna á sviðinu í gær.
Drake og Rihanna á sviðinu í gær.
VMA tónlistarverðlaunin voru haldin við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Eins og vanalega var kvöldið virkilega vel heppnað. Það sem er aftur móti mest fjallað um í erlendum miðlum í dag er misheppnuð tilraun Drake til að kyssa tónlistarkonuna Rihanna á sviðinu.

Drake vann verðlaun fyrir besta hip hop myndbandið á verðlaununum. Tónlistarkonan Beyoncé kom, sá og sigraði á hátíðinni í New York í gærkvöldi. VMA er tónlistarmyndahátíð sjónvarpsstöðvarinnar MTV. Beyoncé hirti átta verðlaun í gærkvöld og hefur þar með unnið samtals 21 VMA-verðlaun, einu fleiri en tónlistarkonan Madonna sem hefur unnið tuttugu stykki. 

Drake hélt fallega ræðu um tónlistarkonuna Rihanna áður en hann afhenti henni verðlaun. Þegar hún kom síðan upp á svið virðist Drake ætla að smella einum góðum kossi á söngkonuna en hún nær að koma sér undan. Nokkuð vandræðalegt atvik sem sjá má hér að neðan en veraldarvefurinn fór á hliðina í nótt þegar umrætt atvik sást í sjónvarpinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×