Mourinho ætlar ekki að kaupa fleiri leikmenn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. ágúst 2016 16:00 Mourinho á blaðamannafundinum í hádeginu. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að félagið sé búið að ljúka sér af í félagaskiptaglugganum sem lokar um mánaðarmótin. Mourinho er búinn að kaupa fjóra leikmenn í sumar og ef marka má orð hans á blaðamannafundi í dag verða þeir ekki fleiri. „Þetta verður mjög róleg vika hjá okkur. Það verða engar þyrlur að fylgjast með því hverjir koma og fara. Ég er meira en ánægður með hópinn sem ég er með,“ sagði Mourinho. „Ég er með 23 leikmenn í hópnum og geri ekki ráð fyrir frekari breytingum á honum. Ég er með meira en nóg af leikmönnum og ef það koma upp vandræði eða möguleikar mun ég glaður nota leikmenn úr unglingastarfinu.“ Mourinho var einnig spurður út í þýska miðjumanninn Bastian Schweinsteiger sem gaf það út á dögunum að hann væri ekki á förum frá United. Mourinho segir ekki miklar líkur á því að Þjóðverjinn spili fyrir United í vetur.Sjá einnig: Reynsluboltarnir hjá Man Utd voru ósáttir með Schweinsteiger á síðasta tímabili „Það er mjög ólíklegt að það gerist. Ég er ekki að segja að það sé ómögulegt en það verður erfitt fyrir hann. Pogba, Herrera, Schneiderlin, Fellaini, Carrick. Þetta eru þeir fimm leikmenn sem ég er búinn að ákveða að nota í stöðurnar tvær á miðjunni,“ sagði Mourinho. Manchester United sækir Hull City í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.Leikurinn hefst klukkan 16:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD.
Enski boltinn Mest lesið Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Fótbolti Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Fótbolti Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta Fótbolti Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Enski boltinn Hareide kallar Sævar Atla inn Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 89-80 | Vígðu nýju Ljónagryfjuna með sigri Körfubolti Leik lokið: Haukar - Grindavík 80-92 | Þægilegt hjá Grindavík í Ólafssal Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 28-22 | Ekkert hik á Valskonum Handbolti Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Handbolti Æfir hjá gamla félagi föður síns Fótbolti Fleiri fréttir Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Sjá meira