Aron Einar: Ég mun ekki taka hverju sem er Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. ágúst 2016 06:30 Aron í leik með Cardiff. vísir/getty
Svo gæti farið að Aron Einar Gunnarsson skipti um félag áður en lokað verður fyrir félagaskipti í Evrópu um mánaðamótin en hann var í gær orðaður við AS Roma á Ítalíu og HSV Hamburg í ítölskum fjölmiðlum. Aron Einar var hefja sitt fimmta tímabil með Cardiff City en var í minna hlutverki en oft áður á síðustu leiktíð. Hann byrjaði núverandi tímabil á bekknum en hefur spilað síðustu tvo leiki og lagt upp í þeim eitt mark. „Það er bara gamla góða tuggan. Það er ekkert nýtt í þessu og eins og er hefur ekkert formlegt tilboð borist til Cardiff,“ sagði Aron Einar í samtali við Fréttablaðið í gær. „Maður hefur hins vegar heyrt af áhuga ýmissa liða víða um Evrópu. Sumt er spennandi og annað ekki. Það kemur vonandi í ljós á næstu 2-3 dögum hvað verður enda stutt í að lokað verður á félagaskipti. Það hafa verið þreifingar í gangi og ég veit ekki hvar ég mun enda.“ Aron Einar var í lykilhlutverki með íslenska landsliðinu á EM í sumar og vakti eins og fleiri athygli með frammistöðu sinni. „Það hafði líka áhrif að ég spilaði lítið með Cardiff á síðasta tímabili og sjálfsagt hefur það ýtt undir áhuga annarra liða. En það verður bara að koma í ljós hvort að Cardiff þurfi á peningnum að halda sem félagið getur fengið fyrir mig,“ segir Aron Einar enn fremur. „En eins og er líður mér ágætlega, sérstaklega eftir að hafa spilað síðustu tvo leiki. Ég mun ekki taka hverju sem er. Mér líður vel í Cardiff og ef ég færi þá væri það aðeins til að fara til liðs sem mér þykir spennandi kostur fyrir mig og mína fjölskyldu.“Aldrei í betra formi en nú Átta ár eru liðin síðan að Aron Einar kom til Englands frá AZ Alkmaar í Hollandi og á þeim tíma hefur hann spilað sjö tímabil í ensku B-deildinni. Hann neitar því ekki að hann væri mögulega reiðubúinn að prófa eitthvað nýtt. „Þetta er svakalega erfið deild. Það er oft mikil keyrsla og spilað tvisvar í viku. Ef maður leyfir sér að hugsa of mikið um álagið þá gæti maður orðið þreyttur. Vissulega kæmi það vel til greina að prófa eitthvað nýtt en ég er leikmaður Cardiff eins og er og samningsbundinn í tvö ár í viðbót.“ Aron Einar var tæpur vegna meiðsla á EM í sumar en hefur jafnað sig að fullu. „Þegar ég var heima var ég mikið hjá hnykkjara og kom svo aftur hingað út eftir nokkuð stutt frí. Sumarið var því nokkuð strembið en ég hef náð að æfa vel og hef líklega aldrei verið í betra formi en einmitt núna.“ Cardiff á næst leik gegn Reading á heimavelli á morgun en liðið er sem stendur í fimmtánda sæti ensku B-deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki.
Enski boltinn Mest lesið Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Fótbolti Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Fótbolti Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta Fótbolti Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Enski boltinn Hareide kallar Sævar Atla inn Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Álftanes 89-80 | Vígðu nýju Ljónagryfjuna með sigri Körfubolti Leik lokið: Haukar - Grindavík 80-92 | Þægilegt hjá Grindavík í Ólafssal Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 28-22 | Ekkert hik á Valskonum Handbolti Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Handbolti Æfir hjá gamla félagi föður síns Fótbolti Fleiri fréttir Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Sjá meira