Enski boltinn

Þjálfari Harðar Björgvins þurfti að sannfæra Chelsea um að lána sér leikmann

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Antonio Conte ætlaði ekki að nota Tammy Abraham og lánaði hann á endanum.
Antonio Conte ætlaði ekki að nota Tammy Abraham og lánaði hann á endanum. vísir/getty
Knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Bristol City, sem íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon leikur með, og forráðamenn þess þurftu að hafa fyrir því að sannfæra æðstu menn úrvalsdeildarfélagsins Chelsea um að lána því 18 ára gamlan framherja því Lundúnarliðið vill ekki lána menn til ákveðinna félaga.

Chelsea er með lista yfir félög sem það stundar ekki viðskipti við en Chelsea er afskaplega duglegt að lána leikmenn og á marga út um alla Evrópu. Chelsea var með rétt ríflega 60 leikmenn á láni seinni hluta síðustu leiktíðar og lánaði 39 stykki á lokadegi félagaskiptagluggans í ágúst.

Bristol City vildi ólmt fá hinn 18 ára gamla Tammy Abraham til liðs við sig og það tókst á endanum en hann fer frábærlega af stað og er búinn að skora sex mörk í fyrstu sjö leikjum tímabilsins. Það tók Bristol aftur á móti sinn tíma að sannfæra Chelsea.

„Undir lok síðustu leiktíðar fór Lee Johnson [knattspyrnustjóri Bristol] á æfingasvæði Chelsea og kynnti hugmyndina fyrir Michael Emenalo [yfirmanni knattspyrnumála hjá Chelsea]. Á sama tíma fór ég og hitti Roman Abramovic og stjórnina,“ segir Mark Ashton, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bristol City, í viðtali við Bristol Post.

„Chelsea sagðist hafa reynt þetta áður með enskum liðum en að þeirra sögn hefði þetta bara ekki gengið upp. Ég fékk lista hjá Chelsea yfir félög sem það stundar ekki viðskipti við.“

„Ég bað um að fá Tammy í eina leiktíð og að við yrðum metnir á verkum okkar en ekki hvað við höfðum að segja. Við sýndum Chelsea hvað við getum gert og að okkur langar að setja af stað langtíma samstarf.“

„Þegar allt var klárt að hálfu Chelsea og fjármálin komin á hrein var þetta ekki enn komið í hús því þá þurftum við að bíða eftir herra Conte,“ segir Mark Ashton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×